Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Eiður Þór Árnason skrifar 4. nóvember 2026 04:48 Demókratinn James Talarico er sagður hafa sigrað Repúblikanaþingmanninn Ken Paxton. Hann verður fyrsti öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins í Texas frá 1993. ap/James Talarico Allt útlit er fyrir að Demókrataflokkurinn nái meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins eftir kosningar sem margir álíta dóm á störf Donalds Trump forseta. Talning atkvæða er áfram í fullum gangi en línurnar eru víða farnar að skýrast. Dæmi eru um að fulltrúar Demókrata hafi náð markverðum árangri á helstu vígum Repúblikanaflokksins og fá Demókratar sinn fyrsta öldungardeildarmann í Texas í yfir þrjá áratugi.
Mike Johnson, leiðtogi meirihlutans í fulltrúadeildinni og þingmaður Repúblikana, er sagður hafa viðurkennt ósigur flokksins í kosningapartýi sínu í Louisiana. Repúblikanar eru með meirihluta í báðum þingdeildum í dag. Á meðan kannanir bentu sterklega til þess að Demókratar myndu ná yfirhöndinni í fulltrúadeildinni eftir kosningarnar í gær ríkti meiri spenna um niðurstöðurnar í öldungadeildinni. Langan tíma gæti tekið að staðfesta niðurstöður á sumum svæðum en helstu miðlar vestanhafs eru sammála um að línurnar séu skýrar. Demókratar hafi nái yfirhöndinni í öldungadeildinni Þegar þetta er skrifað eru demókratar sagðir hafa náð til sín sex sætum frá Repúblikönum í öldungadeild þingsins og tryggt sér þau 51 sæti sem þarf til að ná þar meirihluta. Samkvæmt spámódeli The New York Times þurfti flokkurinn að sigra í þremur lykilríkjum til þess að ná meirihluta í deildinni en hafi nú gert gott betur og tryggt sér sigur í tveimur til viðbótar. Þá séu demókratar mjög líklegir til að græða eitt í viðbót í Maine og styrkja meirihluta sinn. Þannig eru demókratar ýmist búnir að sigra eða taldir líklegir til að sigra í nær öllum mikilvægu sveifluríkjunum. Staðan dræm fyrir Repúblikana í fulltrúadeildinni Kannanir fyrir kosningarnar höfðu lengi bent sterklega til þess að demókratar myndu ná meirihlutaleiðtogasætinu úr höndum repúblikana og virðist sú mynd vera að raungerast. Þegar þetta er skrifað eru Demókratar sagðir hafa tryggt sér 158 sæti í fulltrúadeildinni en þeir þurfa alls 218 til að ná þar meirihluta. Samkvæmt kosningamódeli The New York Times þurfa demókratar að vinna fjórtán lykilsæti til þess að ná yfirhöndinni og hafa þegar tryggt sér tólf þeirra. Flokkurinn er sagður frekar eða mjög líklegur til að vinna í 24 umdæmum til viðbótar og því talið nær öruggt að Demókrataflokkurinn geti fagnað sigri í báðum deildum. Hægt er að fylgjast með nýjustu talningarniðurstöðum í útsendingunum hér fyrir neðan. Fréttin er í vinnslu.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Sjá meira