Körfubolti

LeBron James fékk sér sopa af vín­glasi á­horf­anda í miðjum leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tímabilið er að byrja vel hjá LeBron James og félögum hans í liði Philadelphia 76ers.
Tímabilið er að byrja vel hjá LeBron James og félögum hans í liði Philadelphia 76ers. AP/Chris Szagola

LeBron James sagði á sínum tíma að hann drykki eitt vínglas á dag og þakkar það að hluta til langlífi sínu í íþróttinni. Í nótt fékk hann aftur á móti óvænta vínsmökkun í miðjum leik.

​Í þriðja leikhluta gegn Chicago Bulls, þegar Philadelphia 76ers voru ellefu stigum yfir, elti James lausan bolta og endaði á því að rekast á stuðningsmann sem hélt á glasi af rauðvíni sem er uppáhald James.

​Og því fékk hann sér sopa. ​

„Mig langaði að sjá hvort það hefði verið þess virði að fá það á handlegginn, hversu gott það væri. Það var allt í lagi,“ sagði James brosandi eftir leikinn. ​

Stuðningsmaðurinn var Troy Clemons, sem hefur lengi átt ársmiða hjá Sixers og ólst upp með sonum Julius Erving. Clemons var ekkert pirraður yfir því að James hefði fengið sér sopa.

​„Ég er bara ánægður að hafa hann hérna og ég hef engar áhyggjur af því að fá vín á mig,“ sagði Clemons við ESPN.

​Sixers unnu leikinn að lokum 126-107. James endaði með 15 stig, sjö fráköst og níu stoðsendingar og Sixers bættu árangur sinn í sigra og aðeins eitt tap.

Hinn 41 árs gamli LeBron James er með 16,4 stig, 7,0 fráköst og 7,0 stoðsendingar að meðaltali á 33,4 mínútum á leiktíðinni.

https://x.com/barstoolsports/status/2117466260774818136?a=nvm51yRGB8w7_RDZdbc&s=20
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×