Lífið

Mis­tök að hafa klætt sig upp sem heimilis­lausa

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Martha Stewart hefur marga fjöruna sopið, hér er hún með rapparanum Snoop Dogg á MTV hátíðinni árið 2017.
Martha Stewart hefur marga fjöruna sopið, hér er hún með rapparanum Snoop Dogg á MTV hátíðinni árið 2017. EPA/MIKE NELSON

Bandaríska athafnakonan Martha Stewart hefur beðist afsökunar og sagst hafa hlaupið á sig eftir að hún birti mynd af sér á Instagram í búningi heimilislausrar manneskju í tilefni af Hrekkjavöku. Búningurinn féll ekki í kramið á veraldarvefnum.

„ÉG ER SVÖNG HJÁLPIÐ MÉR“ stóð á skilti sem hin 84 ára gamla athafnakonan hélt á þar sem hún stillti sér upp fyrir framan heimili sitt ásamt hundunum sínum tveimur. Samkvæmt frétt Guardian stóð ekki á viðbrögðum meðal netverja sem fóru hörðum orðum um uppátækið. Athafnakonan sem er virði einhverra 400 milljóna Bandaríkjadollara eða 48,7 milljarða íslenskra króna gaf fyrst frá sér yfirlýsingu til bandarískra fréttamiðla vegna málsins.

Hún sagði að búningnum hafi verið ætlað að vekja athygli á vandanum sem væri heimilisleysi og sagði hún að sér þætti miður að hafa móðgað fólk. Það hafi aldrei verið ætlunin.

„Ég hef varið áratugum í að kenna öðrum hvernig á að halda upp á hrekkjavöku – deilt skemmtilegum og hátíðlegum uppskriftum, komið með einstakar föndurhugmyndir og gefið ráð um veisluhöld og gestgjafahlutverkið til að nýta sem best eina af uppáhaldshátíðum mínum á árinu.Ég er miður mín yfir því að hrekkjavökubúningurinn minn í gær, sem var ætlað að vekja meiri athygli á hinu mjög alvarlega málefni heimilisleysis, hafi móðgað fólk, sem var aldrei ætlun mín,“ sagði Stewart.

Búningurinn féll ekki í kramið.

„Heimilisleysi er enn ein af stærstu áskorunum og viðvarandi krísum Bandaríkjanna, málefni sem skiptir mig miklu máli og ég hef varið umtalsverðum tíma og kröftum í að styðja góðgerðasamtök sem berjast gegn þessum viðvarandi samfélagsfaraldri. Ég er staðráðin í að halda áfram að láta gott af mér leiða.“

Nokkrum klukkustundum eftir að sú yfirlýsing birtist skrifaði Stewart aðra yfirlýsingu á Instagram þar sem hún baðst afsökunar.

„Það er erfitt að viðurkenna þegar maður hefur virkilega klúðrað málunum. Fyrri yfirlýsing mín gekk ekki nógu langt,“ skrifaði hún. „Ég veit að margir eiga erfitt fjárhagslega. Að klæðast búningi eins og ég gerði var tillitslaust og ekki fyndið. Mér þykir það mjög leitt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.