Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Valur Páll Eiríksson skrifar 31. október 2026 10:45 Sherrock gat aldeilis fagnað í gær. Getty Enski pílukastarinn Farron Sherrock kom, sá og sigraði á sérstöku áskorendakvöldi Luke Littler og Netflix í gærkvöld.
Netflix auglýsti viðburðinn í júlí og bauð almenningi að skrá sig til þátttöku á kvöldinu. Haldin var sérstök undankeppni víða um Bretlandseyjar og eftir stóðu 20 áskorendur sem áttu hver og einn að keppa við Littler í einum ramma af pílukasti, upp í 501. Viðburðurinn bar heitið „Vinndu Luke Littler“ og var þeim sem tækist að hafa betur gegn Littler boðin 501 þúsund pund í vinningsfé, eða rúmar 82 milljónir króna. Áhugamönnum var þar boðið tækifæri að vinna sér inn gríðarháa fjárhæð og prófa að takast á við ríkjandi heimsmeistara. Sherrock hefur verið þátttakandi á mótaröðum í pílukasti og iðulega komist á heimsmeistaramótið í desember en þar sem hún er ekki keppandi á PDC-heimsmótaröðinni var henni heimilt að taka þátt. Fjórtán pílukastarar höfðu reynt, þar á meðal einn 14 ára gamall, höfðu reynt að hafa betur gegn Littler á viðburðinum í Manchester í gær sem streymt var beint á Netflix. Engum hafði tekist það þegar Sherrock steig á svið. The moment Fallon Sherrock hit a 180 before going on to #BeatLukeLittler and win £501k! https://t.co/jrpkPvWBFw— Netflix UK & Ireland (@NetflixUK) October 30, 2026 Hún var nær búllinu (miðju píluspjaldsins) í upphafi og fékk því að byrja og tók út 180, hæsta skor í þremur köstum, í fyrstu heimsókn. Hún var skrefi á undan og kláraði 501 með því að hitta í tvöfaldan 20 með sínu síðasta kasti. Það kast veitti Sherrock heilar 82 milljónir króna. „Þetta er geðveiki. Ég kem því ekki í orð hvaða þýðingu þetta hefur, sérstaklega með Rory (son hennar) í salnum. Þetta er í fyrsta skipti sem hann mætir á keppni og sér mig vinna,“ sagði Sherrock eftir að hafa unnið Littler. Hinn 19 ára gamli Littler, sem er ríkjandi heimsmeistari síðustu tveggja keppna, sagði: „Glæsilegt. Þetta er það sem ein manneskja þurfti að gera, vinna búllið í byrjun og klára rammann í 15 pílum og það er það sem hún gerði. Þetta var í heimsklassa.“
Pílukast Mest lesið Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir Emil skrifar undir hjá Fram Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Grótta í sambandi við Davíð Smára Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ „Hans besti leikur“ 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Dagskráin: Doc Zone en fyrst stórleikur Chelsea og Man. Utd Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Fjórði sigur Valskvenna í röð Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Sænska ríkisstjórnin vill stöðva þátttöku Rússa á HM Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Rosalegt pílukvöld á Selfossi „Mér finnst ég vera byggður öðruvísi“ Sjá meira