Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Rakel Sveinsdóttir skrifar 2. nóvember 2026 07:01 Það getur verið svo dýrmætur skóli að stofna fyrirtæki og fara í rekstur. Eins og vinkonurnar Sigrún Erla Lárusdóttur og Guðný Ásberg Alfreðsdóttir gerðu; nú umboðsaðilar Arencia á Íslandi, búnar að yfirtaka bílskúr foreldra Guðnýjar og með það markmið að geta starfað í fullu starfi fyrir heildssöluna þegar fram líða stundir. Vísir/Anton Brink Í desember í fyrra sitja tvær vinkonur í bíl fyrir utan Sambíóin í Álfabakka á leið í bíó. Önnur þeirra – Sigrún Erla Lárusdóttur - segir hinni frá tölvupósti sem hún fékk frá kórenska húðsnyrtivörufyrirtækinu Arencia – sem margir þekkja erlendis frá hjá Sephora.
Tölvupósturinn var jákvætt svar við fyrirspurn um hvort það væri möguleiki á að fá umboðið til að flytja vörurnar til Íslands. Hin vinkonan – Guðný Ásberg Alfreðsdóttir - var strax alveg til í slaginn. Síðan tekur við bíómynd í lúxussalnum. Þar er ekkert hlé. „Ég man þetta svo vel. Ég var svo spennt að ég hugsaði ekki um annað alla myndina. Og þegar hún var búin vorum við eiginlega bara komnar af stað,“ segir Guðný. Sem er ekki ofsögum sagt. Því fljótlega eftir bíóferðina stofnuðu þær einkahlutafélagið Kóral, umboðsaðila Arencia á Íslandi. En hvað fékk þig til að senda tölvupóstinn til Kóreu spyrjum við Sigrúnu. ,,Mér leiddist bara þarna í desember,“ svarar Sigrún og hlær. Guðný og Sigrún kynntust á sunnudagsæfingu í CrossFit Reykjavík árið 2020 og smullu nánast strax saman sem mjög góðar vinkonur. Þegar kom að því að gera alvöru úr því að stofna fyrirtæki fannst þeim báðum enginn koma til greina nema að fara í rekstur saman. Yfirtóku bílskúr foreldranna Guðný og Sigrún eru báðar fæddar árið 1997 og hafa verið vinkonur frá ársbyrjun 2020, þegar þær kynntust á sunnudagsæfingu í CrossFit Reykjavík. „Það var stelpa að peppa mig að koma á æfingu og hún var líka að peppa Guðnýju,“ segir Sigrún um fyrstu kynnin. Sem fljótlega leiddu til vinskapar langt út fyrir æfingarnar: þær einfaldlega smullu saman. Og svo kom Covid. Líkamsræktarstöðvar – sem fleiri – skelltu í lás og fátt mátti gera þar sem eitthvað fólk kom saman. Guðný var sem betur fer með fína æfinga-aðstöðu í bílskúrnum hjá foreldrum sínum. Sigrún fór því að mæta í bílskúrinn líka og þar æfðu þær saman. ,,Við erum reyndar eiginlega búnar að yfirtaka bílskúrinn hans ,“ segir Guðný og útskýrir: ,,Því núna er bílskúrinn lager Arencia.“ Bissnessinn byrjaði því í bílskúrnum. Eins og oft á við í sögum frumkvöðla. Hvort sem það eru frumkvöðlar eins og Eyjólfur Pálsson í Epal eða Steve Jobs hjá Apple, sem hóf sinn rekstur líka í bílskúrnum hjá pabba. Umræddur pabbi er Alfreð Ásberg Árnason, oftast kenndur við Sambíóin. Sem kemur reyndar aftur við sögu síðar, því þegar viðbótarsending kom til landsins frá Arencia – voru Guðný og Sigrún báðar fastar í dagvinnunni sinni. Sigrún hjá Landsbankanum og Guðný hjá Sambíóin. Sendingin hafði tafist en þegar hún kom loksins, skapaðist smá stress. Þannig að ég hringdi í pabba og sagði bara: Þú verður að fara að sækja þetta fyrir okkur!“ segir Guðný og leikur með tilþrifum símtalið og stressið. „Og hann bara reddaði málunum,“ segir Sigrún og hlær. Enda svo skemmtilegt við spjallið að oft botna vinkonurnar setningarnar eða frásagnirnar hjá hvor annarri. Guðný og Sigrún ákváðu að láta vaða: Stofnuðu heildverslunina Kóral og fluttu inn snyrtivörur frá Kóreu: Arencia sem margir þekkja erlendis frá í verslunum Sephora. Nýverið tók Krónan vörurnar inn í sex verslanir í tilefni Asískra daga. Lærdómurinn Sigrún er í meistaranámi í lögfræði og útskrifast í desember. Samhliða ritgerðarskrifunum er hún í fullu starfi hjá Landsbankanum. Guðný starfar hjá Sambíóunum. Hvorug var sem sagt að leita sér að verkefnum. En báðar höfðu lengi gengið með frumkvöðulinn í maganum: Langaði að fara í eitthvað sjálfstætt og byggja það upp. Ég er með nótu í símanum þar sem ég er búin að skrifa niður fullt af hugmyndum. Hún nær alveg þrjú ár aftur í tímann. En ég lét aldrei verða af neinu,“ segir Sigrún. „Mig hefur alltaf langað að gera eitthvað sjálf, eitthvað mitt eigið. Og ég held að það hefði engin önnur vinkona komið til greina í þetta verkefni nema Sigrún,“ segir Guðný. Oft höfðu vinkonurnar kasað á milli sín hugmyndum. Lykilatriðið var þó að finna eitthvað sem þær hefðu ofur-trú á. Sem þær segja að eigi svo sannarlega við um vörur Arencia. Margir ganga með þann draum í maganum að stofna sitt eigið fyrirtæki en skortir hugrekki til þess. Sigrún og Guðný líta á fyrirtækjareksturinn sem mikilvægan lærdóm þar sem fyrst og fremst skiptir að fara ekki fram úr sjálfum sér. Vísir/Anton Brink Að skella sér í bissness felur samt miklu meira í sér en bara góða hugmynd. Því fyrst var að stofna ehf fyrirtæki – þar reyndist menntun og bankareynsla Sigrúnar vel. Næst var að fá lager til landsins – fyrsta sending kom í apríl; þó engir sölusamningar við verslanir komnar þá. Stöllurnar lögðu út fyrir lagerkaupunum og öðrum kostnaði. Enda tekjurnar bara rétt að byrja að myndast núna: Varan í fyrsta sinn í sölu í sex verslunum Krónunnar. En það eru ótal aðilar að reyna að koma vörum í verslanir. Hvernig gekk það? „Það gekk í rauninni bara vel. Við vorum svo heppnar að fá tækifæri til að fara á fund með Krónunni. Og Krónan hafði trú á okkur og vildi hjálpa okkur og prófa að selja vörurnar yfir Asíska daga,“ segir Guðný. Guðný rifjar upp að einu sinni hafi Sigrún spurt hana: Hvað ef þetta virkar ekki? Ég sé þetta bara sem skóla. Það er líka svo mikill lærdómur í því ef þetta virkar ekki,“ segir Guðný. Verið óhrædd og lærið - segja vinkonurnar við þann hóp fólks sem gengur með draum í maganum um fyrirtækjarekstur. Vissulega komi upp alls kyns stress og verkefni - en úr þeim leysist oftast á farsælan hátt. Þeirra saga tengt skattinum er gott dæmi um það. Eða þegar pabbinn þurfti að sækja lagerinn. Verið óhrædd og lærið Kóral er heildssala og sjá vinkonurnar fyrir sér að byggja fyrirtækið upp þannig að það verði þeirra framtíðarstarf og viðurværi. Mögulega með fleiri vörur en Arencia – mikilvægt sé þó að fara ekki fram úr sjálfum sér. Vinkonurnar segjast vinna afar vel sem teymi. Sigrún er betri í öllu sem snýr að bókhaldi og skipulagi á meðan Guðný er meira í markaðsmálum og tengdum verkefnum. Báðum finnst fyrri störf og reynsla hafa nýst sér afar vel. Sigrún nefnir þar sérstaklega starfið í Landsbankanum og Guðný þann fjölskyldurekstur sem hún þekkir: „Ég hef oft grínast með það að ég hafi alltaf verið hinum megin við borðið, að díla við heildsalana fyrir bíóið.“ Eru þær einhvern tímann ósammála? „Jú, það hefur auðvitað verið eitthvað. En ekkert stórt og ef eitthvað er, finnum við lendingu,“ svarar Sigrún. Vinkonurnar viðurkenna að tala mikið um vinnuna og gleyma jafnvel stundum vinkonuspjallinu. Sem betur fer séu samt aðrir hlutir sem tengja þær líka; ekki síst Cross Fit. Guðný og Sigrún segjast gott teymi þar sem styrkleikarnir nýtast hjá hvorri um sig í sitthvorum verkefnunum. Oft gleymist vinkonuspjallið, svo margt er hægt að ræða um tengt fyrirtækinu. Þær séu þó duglegar að gera alls kyns annað skemmtilegt saman; enda bestu vinkonur utan vinnu líka. Framtíðarplanið er skýrt, en enginn asi á því. Okkur langar að stækka hægt og rólega. Við erum alltaf að senda hvor annarri hugmyndir að einhverjum vörum. Planið er að taka inn fleiri vörur til að hafa meira úrval hérna heima, þá helst snyrtivörur og húðvörur,“ segir Sigrún. „En líka að passa að fókusa á þetta merki og láta það vaxa á Íslandi. Við höfum talað um að passa að stækka ekki of hratt,“ segir Guðný. Hvaða ráð mynduð þið gefa öðru ungu fólki – jafnvel vinum eða vinkonum – sem langar að fara saman í rekstur? „Bara vera óhrædd,“ segir Sigrún. Kóral Guðný Ásberg og Sigrún Erla - vinkonur í bissness - Kóral heildverslun. Við getum þó ekki kvatt vinkonurnar nema að heyra um einhverja áskorun eða jafnvel gryfju fyrst. Því allir frumkvöðlar lenda í einhverju í árdaga reksturs. Sigrún segir þá frá skemmtilegri sögu. Sem kalla má: Skatta-skelfirinn. „Við höfðum ekki fengið neinar tilkynningar frá bankanum um ógreidda reikninga. Svo er ég eitthvað að kíkja í vinnunni og allt í einu er bara 300 þúsund króna reikningur frá Skattinum. Eindaginn var fyrir tveimur vikum,“ segir Sigrún og hlær. Fyrirtækið hafði ekki verið með neina veltu. Enda voru þær þegar þetta gerðist enn að bíða eftir að koma vörunum í sölu hjá Krónunni. Skýringin? Þær höfðu ekki skilað inn svokallaðri núllskýrslu vegna staðgreiðslu. Skatturinn áætlaði því á félagið – gott að muna fyrir alla nýja rekstraraðila! „Ég var að búast við því að við þyrftum að greiða vexti og allt sem hafði safnast upp. En þeir felldu þetta bara niður. Þetta fór allt vel. Og við höfum ekki gleymt að skila inn síðan,“ segir Sigrún og bætir við: „Maður lærir bara af þessu.“ Sem er akkúrat það sem Guðný hafði sagt fyrr í viðtalinu: Að fara í rekstur er svo mikill skóli!
Verslun Tengdar fréttir Skemmtilegir úlpustrákar: Vinir sem urðu viðskipta-vinir Það er gaman að taka spjallið við þá Sveinbjörn Traustason og Davíð Örn Ingimarsson, æskufélaga sem ákváðu að gerast frumkvöðlar og stofna fyrirtæki sem leigir útlendingum úlpur og annan útivistafatnað, gönguskó og útilegubúnað. 11. desember 2024 07:01 Hló og grét þegar hún seldi fyrir milljón á einum degi „Jú það kom alveg tími þar sem ég efaðist. Hvort ég ætti að halda áfram eða hætta. Kannski gæti ég þetta ekkert, mér fannst ég ekki nógu sæt eða vita nógu mikið og svo framvegis,“ segir Gerður Huld Arinbjarnardóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Blush. 30. janúar 2024 07:00 Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ „Ég held að uppeldið hafi skipt þar miklu. Foreldrar mínir hafa alltaf sagt að ég gæti gert allt sem ég vil. Sem þó var ekkert alltaf auðvelt. Til dæmis ætlaði ég að verða læknir en ákvað að taka pásu í háskóla og stefna að því að verða atvinnumaður í CrossFit,“ segir Annie Mist Þórisdóttir, fyrrum heimsmeistari í CrossFit og einn af stofnendum nýsköpunarfyrirtækisins Dottir Skin. 11. september 2024 07:01 Selfossvinir og afar sem velta milljörðum Það er ekkert smá gaman að spjalla við vinina Guðbrand Randver Sigurðsson og Davíð Þór Kristjánsson, sem nú fara fyrir fyrirtækinu IDS á Íslandi en stofnuðu Endor árið 2015; sem síðar var selt til Sýnar, en klauf sig þaðan út í fyrra og er nú hluti af alþjóðlegu keðjunni IDS. 13. febrúar 2025 07:03 „Þau vildu ræða við kempurnar þrjár: Katrínu Jak, Elízu Reid og mig!“ „Þau vildu ræða við kempurnar þrjár: Katrínu Jak, Elízu Reid og mig!“ segir Alma Dóra Ríkarðsdóttir og skellihlær. Enda vægast sagt skemmtileg saga sem fylgir því hvernig nýsköpunarfyrirtækið hennar og Sigurlaugar Guðrúnar Jóhannsdóttir sló í gegn í Hollandi fyrir stuttu. 4. mars 2024 07:00 Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Lokanir, lægðir og samviskubit Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Sjá meira
Skemmtilegir úlpustrákar: Vinir sem urðu viðskipta-vinir Það er gaman að taka spjallið við þá Sveinbjörn Traustason og Davíð Örn Ingimarsson, æskufélaga sem ákváðu að gerast frumkvöðlar og stofna fyrirtæki sem leigir útlendingum úlpur og annan útivistafatnað, gönguskó og útilegubúnað. 11. desember 2024 07:01
Hló og grét þegar hún seldi fyrir milljón á einum degi „Jú það kom alveg tími þar sem ég efaðist. Hvort ég ætti að halda áfram eða hætta. Kannski gæti ég þetta ekkert, mér fannst ég ekki nógu sæt eða vita nógu mikið og svo framvegis,“ segir Gerður Huld Arinbjarnardóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Blush. 30. janúar 2024 07:00
Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ „Ég held að uppeldið hafi skipt þar miklu. Foreldrar mínir hafa alltaf sagt að ég gæti gert allt sem ég vil. Sem þó var ekkert alltaf auðvelt. Til dæmis ætlaði ég að verða læknir en ákvað að taka pásu í háskóla og stefna að því að verða atvinnumaður í CrossFit,“ segir Annie Mist Þórisdóttir, fyrrum heimsmeistari í CrossFit og einn af stofnendum nýsköpunarfyrirtækisins Dottir Skin. 11. september 2024 07:01
Selfossvinir og afar sem velta milljörðum Það er ekkert smá gaman að spjalla við vinina Guðbrand Randver Sigurðsson og Davíð Þór Kristjánsson, sem nú fara fyrir fyrirtækinu IDS á Íslandi en stofnuðu Endor árið 2015; sem síðar var selt til Sýnar, en klauf sig þaðan út í fyrra og er nú hluti af alþjóðlegu keðjunni IDS. 13. febrúar 2025 07:03
„Þau vildu ræða við kempurnar þrjár: Katrínu Jak, Elízu Reid og mig!“ „Þau vildu ræða við kempurnar þrjár: Katrínu Jak, Elízu Reid og mig!“ segir Alma Dóra Ríkarðsdóttir og skellihlær. Enda vægast sagt skemmtileg saga sem fylgir því hvernig nýsköpunarfyrirtækið hennar og Sigurlaugar Guðrúnar Jóhannsdóttir sló í gegn í Hollandi fyrir stuttu. 4. mars 2024 07:00