Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Eiður Þór Árnason skrifar 29. október 2026 16:00 Jón Guðni Ómarsson er bankastjóri Íslandsbanka. Vísir/Anton Brink Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Jókst hann ár frá ári en bankinn hagnaðist um 6,9 milljarða á sama þriggja mánaða tímabili árið 2025. Alls hefur Íslandsbanki hagnast um 21,8 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum þessa árs, samanborið við 19,3 milljarða á sama tímabili árið 2025.
Hreinar vaxtatekjur námu 15,8 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2026 og hækkuðu um 2,6 milljarða samanborið við tímabilið í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu Íslandsbanka til Kauphallar. Vaxtamunur, það er mismunurinn milli þeirra vaxta sem bankinn rukkar vegna útlána og þeirra sem hann greiðir út vegna innlána, jókst milli ára og fór úr 3,1 prósenti á þriðja ársfjórðungi 2025 í 3,5 prósent á nýliðnum ársfjórðungi. Hreinar þóknanatekjur, sem ná yfir ýmis gjöld sem rukkuð eru fyrir þjónustu bankans, voru 3,3 milljarðar króna á ársfjórðungnum samanborið við 3,2 milljarða á sama tímabili í fyrra. Eigið fé nam 215,4 milljörðum króna í lok þriðja ársfjórðungs og minnkar lítillega en það var 225,4 milljarðar í lok árs 2025. Arðsemi eigin fjár á þriðja ársfjórðungi var 13,6 prósent á ársgrundvelli samanborið við 12,2 prósent á þriðja ársfjórðungi 2025. Reksturinn þróist vel Haft er eftir Jóni Guðna Ómarssyni, bankastjóra Íslandsbanka, að rekstur bankans hafi „áfram þróast vel í samræmi við stefnu hans.“ Hann gerir athugasemdir við fyrirætlanir stórnvalda um aukna skattheimtu. „Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er lagt til að bankaskattur hækki úr 0,145% í 0,254%, sem jafngildir um 75% hækkun. Því hefur verið haldið fram að lækkun bankaskattsins árið 2020 hafi ekki skilað sér til viðskiptavina, en gögnin benda til annars. Síðan þá hefur vaxtamunur gagnvart heimilum dregist saman þrátt fyrir mikla hækkun stýrivaxta og þjónustugjöld hafa lækkað að raunvirði. Sérstakir skattar á íslenska banka eru nú þegar meira en fimmfalt hærri en að meðaltali í Vestur-Evrópu. Það veikir samkeppnisstöðu íslenska fjármálakerfisins nú þegar og fyrirhuguð hækkun myndi draga enn frekar úr samkeppnishæfni þess,“ segir Jón í tilkynningu bankans. Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið „Ég hef aldrei spilað golf“ Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós „Ég hef aldrei spilað golf“ Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Sjá meira