Viðskipti innlent

Bein út­sending: Nýsköpunarþing 2026 - Tæki­færi og á­skoranir á lands­byggðinni

Samúel Karl Ólason skrifar
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra veitir Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026 í lok þingsins í dag.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra veitir Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026 í lok þingsins í dag. Vísir/Anton Brink

Nýsköpunarþing Íslands fer fram í dag. Það snýr að þessu sinni að tækifærum og áskörunum í nýsköpun á landsbyggðinni. Fulltrúar fyrirtækja og frumkvöðlar úr ólíkum atvinnugreinum og landshlutum munu mæta og deila reynslu sinni.

Á þinginu munu þeir segja frá sinni reynslu af nýsköpun og hvað þurfti til svo að góð hugmynd vaxi og dafni á landsbyggðinni, eins og segir í yfirlýsingu.

Þá verður farið yfir hvaða tækifæri felast í staðbundinni þekkingu og sérstöðu ólíkra svæða.

Í lok þingsins veitir Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026.

Nýsköpunarþing hefst klukkan tvö og stendur yfir til fjögur og fer fram í Grósku. Streymt verður frá því í beinni útsendingu og má horfa í spilaranum hér að neðan.


Dagskrá

Opnunarávarp

Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís

Setning Nýsköpunarþings 2026

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra

Tækifæri til nýsköpunar í ferðaþjónustu

Knútur Rafn Ármann, stofnandi og eigandi Friðheima

Ignite Nordic: Nýsköpun innan starfandi fyrirtækja

Sigmar Bjarni Sigurðsson, Drift EA

Nýsköpun í verki - stutt erindi frá fyrirtækjum í nýsköpun

Primex: Þóra Ýr Árnadóttir

Grammatek: Anna Nikulásdóttir*

Stökkfiskur: Sigrún Finna Snædal

Startup Landið

Anna Lind Björnsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra

Guðlaugur Skúlason, verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Pallborðsumræður

Hvað þarf til að nýsköpun þrífist um land allt?

Afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra

Fundarstjóri og stjórnandi pallborðs: Freyr Eyjólfsson

Að lokinni dagskrá verður boðið upp á léttar veitingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×