75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Valur Páll Eiríksson skrifar 29. október 2026 10:30 Höfuðhögg í NFL-deildinni valda ástæðu til að hafa áhyggjur af áhrifum greinarinnar á þá sem hana iðka. AP Photo/Julio Cortez Talið er að um 75 prósent fyrrverandi leikmanna NFL-deildarinnar sem létust á árunum 2008 til 2023 hafi verið með langvinnan heilakvilla af völdum áverka (e. chronic traumatic encephalopathy, CTE), samkvæmt nýrri rannsókn.
CTE er taugahrörnunarsjúkdómur í heila sem tengdur er við íþróttir með miklum höfuðhöggum, til að mynda amerískan fótbolta. Nígerísk-bandaríski læknirinn Bennet Omalu setti hugtakið CTE fram í grein árið 2005 eftir að hafa rannsakað fyrrum NFL-leikmanninn Mike Webster, sem lést árið 2002 eftir að hafa hagað sér óvenjulega um nokkurt skeið áður en hann svipti sig lífi. Fjölmargir leikmenn í NFL hafa sýnt einkenni CTE eftir að ferli þeirra lauk, sem hvað helst sýnir sig í snemmbúnum vitglöpum, ofbeldishneigðri hegðun og þunglyndi. Árið 2015 féllst deildin á að greiða einn milljarð bandaríkjadala í bótagreiðslur til að leysa þúsundir málsókna fyrrum leikmanna sem þjáðust af tauga- og/eða heilaskaða. CNN greinir frá niðurstöðum rannsóknarinnar, sem birtist í JAMA Network Open og var unnin af vísindamönnum við Boston-háskóla, Mass General Brigham og Concussion & CTE Foundation, segir að hún sé fyrsta heildstæða tilraun vísindamanna til að átta sig á algengi CTE meðal látinna fyrrverandi leikmanna NFL-deildarinnar. Sumir sömu vísindamanna birtu grein í ágúst þar sem áætlað var að einn af hverjum fjórum fyrrverandi leikmönnum NFL-deildarinnar sem létust á árunum 2016 til 2021 hefði verið með CTE. Aðrar rannsóknir hafa sýnt fram á að yfir 90 prósent fyrrverandi leikmanna sé með sjúkdóminn, þar sem voru þó vísbendingar um valskekkju. Aðeins greinanlegt eftir fráfall Aðeins er hægt að greina taugahrörnunarsjúkdóminn eftir andlát og rannsóknir á því að þróa próf fyrir CTE meðan fólk er á lífi standa enn yfir. Af þeim sökum vöruðu vísindamenn sem sinntu rannsókninni við því að matið ætti aðeins við um látna leikmenn NFL-deildarinnar og segði ekki fyrir um algengi CTE meðal núlifandi leikmanna. Rannsóknin fjallar heldur ekki um algengi meðal leikmanna í háskóla- eða unglingaliðum. Meðal annarra fyrirvara var að rannsóknin gefur ekki til kynna hvaða einkenni, ef einhver, hefðu komið fram hjá leikmönnunum sem gætu hafa tengst CTE. CTE er flokkað í stig frá I til IV eftir alvarleika. Einkenni koma oft ekki fram á fyrstu stigunum, að sögn vísindamanna. 75 prósent með CTE Julia Gallini, aðalhöfundur greinarinnar, sagði í yfirlýsingu að áætlað algengi upp á nærri 75 prósent væri „áhyggjuefni“ og að leggja þyrfti meira af mörkum „til að styðja fjölskyldur, greina CTE meðan fólk er á lífi og meðhöndla einkenni sem tengjast CTE.“ Fyrri rannsóknir á CTE hafa sætt gagnrýni fyrir valskekkju, þar sem þær byggðust á heilum sem leikmenn gáfu, en þeir voru líklegri til að hafa haft einkenni meðan þeir lifðu. Nýjasta rannsóknin náði til 2.362 tilfella. Í henni voru sameinuð gögn um 396 leikmenn sem gáfu heila sinn og skrár bandarísku dánarskrárinnar (National Death Index) um þá 1.966 látnu leikmenn sem gerðu það ekki. Samanborið við þá sem ekki gáfu heila sinn voru gjafarnir í rannsókninni líklegri til að vera hvítir, hafa látist yngri og hafa leikið lengur í NFL-deildinni. Nærri 94% gefinna heila reyndust með CTE. „Jafnvel eftir að tekið hefur verið tillit til mismunandi tíðni heilagjafa benda niðurstöður okkar til þess að algengi CTE meðal látinna leikmanna NFL-deildarinnar sé enn hátt,“ sagði í greininni. Deildin hvetur leikmenn til að leita úrræða NFL-deildin sagði í yfirlýsingu að hún „leitist stöðugt við að gera íþróttina öruggari, meðal annars með aðgerðum sem miða að því að fækka heilahristingum og höfuðhöggum. „Við hvetjum fyrrverandi leikmenn til að nýta sér þessi úrræði til að greina vanda og leita meðferðar þegar þeir hafa áhyggjur af heilsu sinni.“ Leikmannasamtök NFL-deildarinnar (NFL Players Association) sögðu að slíkar rannsóknir „skipti sköpum til að auka skilning okkar á langtímaáhrifum amerísks fótbolta.“
NFL Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Fleiri fréttir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Fylkir kennir fjölmiðlum um og Magnús heitur í Kópavoginum 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Yfir áttatíu erlendir skautarar svífa um í Laugardal Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram Snýr aftur til keppni eftir saurslysið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Átti erfitt fyrsta tímabil en getur nú skrifað söguna „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Sjá meira