Handbolti

Arnór með ellefu og Vals­menn nálgast toppinn

Sindri Sverrisson skrifar
Arnór Snær Óskarsson raðaði inn mörkum í kvöld.
Arnór Snær Óskarsson raðaði inn mörkum í kvöld. vísir/Anton

Íslandsmeistarar Vals unnu fjórða leik sinn í röð í Olís-deild karla í handbolta í kvöld þegar þeir unnu Stjörnuna í Garðabæ, 37-34.

Staðan var jöfn, 7-7, eftir korters leik en Valsmenn náðu svo þriggja marka forskoti fyrir hálfleik, 20-17.

Stjörnumenn héldu spennu í leiknum í seinni hálfleik en eftir að staðan hafði verið 28-31, tíu mínútum fyrir leikslok, juku gestirnir forskotið og sáu til þess að sigurinn yrði ekki í hættu. Þeir komust í 30-36 en Stjarnan minnkaði muninn aftur í þrjú mörk áður en yfir lauk.

Besti maður síðustu leiktíðar, Arnór Snær Óskarsson, fór á kostum í kvöld og skoraði ellefu mörk úr aðeins þrettán skotum, þar af fimm úr sex skotum af vítalínunni.

Andri Finnsson kom næstur með sjö mörk, Bjarni í Selvindi skoraði sex og Gunnar Róbertsson fimm og er Gunnar því kominn með 95 mörk í deildinni til þessa í aðeins átta umferðum.

Hjá Stjörnunni var Ísak Logi Einarsson markahæstur með heil 11 mörk úr 19 skotum þrátt fyrir að fara aldrei á vítalínuna. Gauti Gunnarsson kom næstur með sex mörk og Tandri Már Konráðsson skoraði fimm, þar af þrjú af vítalínunni.

Jens Sigurðarson stóð í marki Vals stærstan hluta leiksins og varði 9 skot af 37 eða 24% en Sigurður Dan Óskarsson varði 10 af 42 í marki Stjörnunnar eða einnig 24%.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×