Skoðun

Opið bréf til inn­viðaráðherra og at­vinnu­vegaráðherra

Örvar Marteinsson skrifar

Á síðustu árum hafa dunið yfir áföll í sjávarútvegi og fyrst og fremst af mannavöldum, ekki síst hjá útgerðum sem gera út báta í krókaaflamarki. Má þar nefna hækkun veiðigjalda og sífellt minnkandi línuívilnun, sem bitnar harðast á smæðstu útgerðunum.

Rekstur krókaaflamarksbáta er niðurnjörfaður í höft og takmarkanir sem ekki þekkjast annars í aflamarkskerfinu. Takmarkanir sem draga verulega úr verðmætasköpun, skaðlegar fyrir þjóðina alla. Krókaaflamarksbátar mega, auk annarra hafta, eingöngu nota línu og handfæri, en engin önnur veiðarfæri. Þrátt fyrir allar takmarkanirnar þurfa viðkomandi útgerðir að bera sömu veiðigjöld eins og hinir stóru.

Nú stendur til endurskoðun á byggðakerfi sjávarútvegs og búast má við að enn frekar verði skorið niður til línuívilnunar og hún jafnvel aflögð. Þar með verður búið að veita smæðstu heilsársútgerðunum náðarhöggið – sem leiðir auðvitað til enn frekari samþjöppunar í sjávarútvegi. En sárast er þó að horfa upp á atvinnumissi sjómanna og þeirra sem vinna við beitningu og uppstokkun á ársgrundvelli. Skerðing línuívilnunar nú og í fyrra hefur þegar valdið uppsögnum hjá fólki sem hafði trygga atvinnu nánast allt árið, en þó aðeins til þess að bæta rúmlega hálfum degi við strandveiðar. Það er mikill fórnarkostnaður. Og það eru mikil völd að geta tekið atvinnu af einni manneskju og færa annarri!

Ljóst er að ef úr verður, og línuívilnun verður aflögð munu margar útgerðir leggja upp laupana. Leiðir til hagræðingar í krókaaflamarki eru allar lokaðar, frelsi til að velja sér veiðarfæri er ekkert og ýmsar aðrar takmarkanir og höft gilda um krókaaflamark, sem gilda ekki um aðra. Ég hvet ykkur því til að skoða leiðir til aukinnar hagkvæmni. Þar er einfaldast og hagkvæmast að auka veiðarfærafrelsi krókaleyfisbáta. Kostnaður við t.d. netaveiðar er aðeins brot af kostnaðinum við línuútgerð. Þar eru mikil tækifæri til verðmætasköpunar. Talsvert hærra meðalverð og miklu minni kostnaður og stærð bátanna hentar vel. Færri krónur í kostnað og fleiri krónur í þjóðarbúið. Um er að ræða gríðarlega hagsmuni fyrir alla þjóðina, ef hægt er að nýta 18% þorskkvótans betur.

Ábyrgðarhluti hjá stjórnvöldum

Það er grafalvarlegt ef stjórnvöld horfa framhjá tækifærunum sem eru fólgin í afnámi hafta í krókaaflamarkskerfinu. Stjórnvöld eru þá bæði að kasta verðmætum á glæ og drepa niður litlar útgerðir.

Eyjólfur Ármannsson og Hanna Katrín Friðriksson, ég hvet ykkur til að standa vörð um smærri útgerðir með því að auka möguleika til vaxtar og þróunar með auknu veiðarfærafrelsi í krókaaflamarkskerfinu.

Höfundur er smábátasjómaður og formaður Samtaka smærri útgerða.




Skoðun

Sjá meira


×