Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Valur Páll Eiríksson skrifar 26. október 2026 07:32 Clarkson skaut á hinn argentínska Colapinto um helgina. Getty/England Jeremy Clarkson hefur verið gagnrýndur fyrir að gefa í skyn að Franco Colapinto, ökumaður Alpine, hafi átt skilið refsingu á ráslínu vegna þess að hann er Argentínumaður.
Hinn 23 ára gamli ökumaður frá Buenos Aires mun færðist aftur um tíu sæti á ráslínu vegna vélarskipta fyrir Formúlu 1-keppni gærdagsins sem fram fór í Texas. Clarkson, 66 ára, var á þjónustusvæðinu í Austin sem gestur Alpine og lét ummælin falla í viðtali við Sky Sports. Í samtali við Martin Brundle um horfur liðsins í Texas sagði Clarkson: „Franco fékk refsingu á ráslínu fyrir að vera Argentínumaður ... Ja, líklega. Ég myndi gefa honum eina slíka fyrir það. „En hvað um það, það er út af því sem gerðist þegar við fórum þangað.“ Síðustu ummælin virðast vísa til atviks árið 2014, þegar Clarkson og Top Gear-teymið neyddust til að hætta tökum í Patagóníu vegna reiðra mótmælenda eftir að þeir óku um á bíl með númeraplötu sem virtist vísa til Falklandseyjastríðsins. BBC og Clarkson héldu því fram að númeraplatan H982 FKL hefði verið tilviljun. Alpine brást við með yfirlýsingu: „Okkur er kunnugt um ummæli sem gestur liðsins í Austin lét falla í nýlegu sjónvarpsviðtali. Við viljum ítreka að þetta eru persónulegar skoðanir sem samræmast ekki gildum liðsins um að stuðla að góðvild og virðingu. „Franco er okkar ökumaður og nýtur fulls stuðnings okkar.“ Spenna jókst í kringum HM í sumar Atvikið á sér stað í skugga viðvarandi spennu milli Bretlands og Argentínu vegna Falklandseyja. Falklandseyjar eru breskt yfirráðasvæði í nánd við Argentínu og kusu eyjaskeggjar með yfirgnæfandi meirihluta árið 2013 að svo yrði áfram. Í apríl 1982 réðust argentínskar hersveitir inn á eyjarnar en neyddust til að gefast upp í júní sama ár. Argentínska knattspyrnusambandið (AFA) var sektað um 321.000 dali vegna borða sem sýndur var í lok undanúrslitaleiks HM gegn Englandi í sumar, en á honum stóð „Las Malvinas son Argentinas“, sem þýðir „Falklandseyjar eru argentínskar“. Ummæli Clarksons vöktu hörð viðbrögð á netinu, meðal annars frá Jamie Campbell-Walter, öðrum umboðsmanna Colapintos. „Ummæli Jeremys Clarksons um þjóðerni Francos voru algjörlega óásættanleg. Ummæli sem þessi eiga ekki heima í Formúlu 1, óháð því hver lætur þau falla eða hvort þau eru sögð í gríni,“ skrifaði hann á X.
Akstursíþróttir Argentína Bretland Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 Fleiri fréttir Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari Kimi Antonelli á ráspólnum á morgun „Að lokum þurfum við að frelsa Kongó, frelsa Súdan, frelsa Sýrland og frelsa Palestínu“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Tætir í sig „siðferðislega óréttlætanlega“ ákvörðun Formúlu 1 Antonelli getur orðið yngsti heimsmeistari sögunnar í næstu keppni Formúla 1 snýr aftur til Afríku Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Fór fram úr Verstappen og svo fram úr sér Býður við skrifunum: „Ég er Satan“ Hamilton vonast til þess að keppa í Afríku Varað við miklum hita yfir kappakstrinum í Singapúr Kláraði að hjóla 420 km á fjórum dögum fyrir kappakstur Áföllin halda áfram að dynja á Russell Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Verstappen vann skrautlega keppni Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Kunnugleg framlína í Malasíu Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Heimsmeistarinn biðst afsökunar: „Tilfinningarnar báru mig ofurliði“ Segir Horner vera að trufla Ferrari Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Antonelli klessti á og Russell næstum sekúndu hraðari en aðrir Stytta keppnir í Formúlu 1 Sjá meira