Upp­gjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stór­sigur

Ester Ósk Árnadóttir skrifar
Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði tvö mörk fyrir KA í dag.
Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði tvö mörk fyrir KA í dag. vísir/Guðmundur

KA vann ÍBV 5–1 á Greifavellinum í lokaumferð Bestu deildar karla en féll þrátt fyrir stórsigurinn. Þór sneri á sama tíma við leik sínum gegn FH í Laugardalnum og vann 2–1 sem þýddi að KA fylgdi Eyjamönnum niður úr deildinni.

Heimamenn byrjuðu af krafti og komust yfir strax á þriðju mínútu. Adam Ægir Pálsson kom boltanum út á Guðjón Erni Hrafnkelsson sem sendi fyrir á Jakob Snæ Árnason og hann skallaði í netið. KA varð þó snemma fyrir áfalli þegar Birgir Baldvinsson fór meiddur af velli og Snorri Kristinsson kom inn á í hans stað.

Skömmu síðar brutust út fagnaðarlæti í stúkunni þegar fréttist að Adolf Daði Birgisson hefði komið FH yfir gegn Þór á sjöundu mínútu. Á þeim tímapunkti var KA á leið upp úr fallsæti.

Eyjamenn náðu síðan betri tökum á leiknum og Heiðmar Þór Magnússon jafnaði með skalla eftir hornspyrnu á 16. mínútu. Gestirnir voru meira með boltann á þessum kafla en náðu ekki að skapa sér mörg hættuleg færi.

Á meðan snerist leikurinn í Laugardalnum við. Þorri Ingólfsson skoraði tvívegis fyrir Þór á 17. og 19. mínútu og skyndilega þurftu KA-menn aftur að treysta á að FH kæmi þeim til hjálpar.

KA komst aftur yfir á 37. mínútu þegar Adam Ægir sendi inn fyrir vörn ÍBV á Mikael Breka Þórðarson sem kláraði vel. Heimamenn sóttu í sig veðrið eftir markið og Hallgrímur Mar Steingrímsson bætti við þriðja markinu í uppbótartíma eftir fyrirgjöf Jakobs Snæs. Staðan var því 3–1 í hálfleik en forysta Þórs í Laugardalnum þýddi að KA var enn á leið niður.

Lítið gerðist fyrstu mínútur síðari hálfleiks en á þeirri 55. skoraði Hallgrímur Mar öðru sinni. Guðjón Ernir tók þá góðan sprett upp kantinn og sendi inn á Jakob Snæ sem lagði boltann á Hallgrím.

Adam Ægir bætti fimmta markinu við á 68. mínútu eftir laglegan snúning í teignum. KA hélt áfram að sækja og Guðjón Ernir komst nálægt því að bæta við marki með skoti utan teigs sem Ari í Haraldstovu Petersen varði. Þrátt fyrir yfirburði heimamanna var spennan áfram áþreifanleg í stúkunni enda vantaði enn jöfnunarmark frá FH.

Það mark kom aldrei. Þegar fréttir bárust af lokaflautinu í Laugardalnum í uppbótartíma á Greifavellinum var fall KA staðreynd. Heimamenn höfðu lokið sínu verkefni með sannfærandi 5–1 sigri en það dugði ekki til að halda sæti þeirra í Bestu deildinni.

Atvik leiksins

Spennan í stúkunni var áþreifanleg þótt KA væri með örugga forystu. Örlög heimamanna réðust annars staðar og þegar fréttir bárust af lokaflautinu í Laugardalnum var fallið staðreynd. Fimm mörk og stórsigur dugðu ekki til.

Stjörnur og skúrkar

Adam Ægir Pálsson var frábær í liði KA og kórónaði frammistöðuna með fimmta markinu. Jakob Snær Árnason skoraði fyrsta markið og lagði upp bæði mörk Hallgríms Mars Steingrímssonar sem var sömuleiðis öflugur.

Varnarleikur Eyjamanna var hins vegar slakur og heimamenn fengu allt of mikið svigrúm til að skapa sér færi.

Stemning og umgjörð

Fullt var á Greifavellinum og þulurinn þurfti að biðja áhorfendur að þétta sig í stúkunni. Mikill fögnuður braust út þegar FH komst yfir gegn Þór en stemningin breyttist þegar Þórsarar svöruðu með tveimur mörkum með stuttu millibili. KA gerði sitt á vellinum en það dugði ekki. Í leikslok var þögnin í stúkunni þrúgandi.

Dómarinn

Ekkert var út á Pétur Guðmundsson og aðstoðarmenn hans að setja. Dómarateymið leysti verkefnið vel.

 Aleksandar Linta: „Hefði viljað sjá miklu meira frá liðinu“

Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV var mjög svekktur með frammistöðu sinna manna eftir 5–1 tap gegn KA á Greifavellinum. Eyjamenn voru þegar fallnir fyrir lokaumferðina og enduðu tímabilið á stórtapi.

Linta sagði liðið ekki hafa mætt nægilega vel til leiks. Hann hefði viljað sjá miklu meira frá sínum mönnum í lokaleik tímabilsins.

Þegar talið barst að sumrinu í heild var mat hans þó að frammistaða ÍBV hefði oft verið betri en stigasöfnunin gaf til kynna. Liðið hefði átt margar góðar frammistöður og leiki þar sem það hefði átt að fá fleiri stig.

Að mati Linta hefðu Eyjamenn átt að vera með níu til tíu stigum meira miðað við spilamennskuna í sumar. Sú varð hins vegar ekki raunin og liðið verður í Lengjudeildinni á næsta ári.

Að lokum var Linta spurður út í framtíð sína hjá ÍBV. Hann sagðist eiga eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira