Fótbolti

KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM

Sindri Sverrisson skrifar
Stelpurnar okkar fögnuðu afar öruggum sigri á Króatíu í undanúrslitum HM-umspilsins en mæta sterku liði Portúgals í úrslitaeinvíginu.
Stelpurnar okkar fögnuðu afar öruggum sigri á Króatíu í undanúrslitum HM-umspilsins en mæta sterku liði Portúgals í úrslitaeinvíginu. vísir/Anton

FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið, tilkynnti í gær að allar þjóðir sem kæmust inn á HM kvenna í Brasilíu næsta sumar fengju 2,5 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 300 milljóna króna, í undirbúningsfé vegna mótsins.

Í tilkynningu FIFA segir að þessi upphæð verði greidd í desember og um sé að ræða hærri upphæð en áður, sambærilega við HM karla í ár.

Ísland er á leið í tveggja leikja úrslitaeinvígi við Portúgal um sæti á heimsmeistaramótinu og verður fyrri leikurinn ytra 1. desember en sá seinni á Laugardalsvelli 5. desember. Þessi sömu lið mættust í umspilseinvígi fyrir síðasta heimsmeistaramót en þá var um stakan leik að ræða og fékk Portúgal þá heimaleik sem liðið vann.

Þær þjóðir sem duttu út í riðlakeppninni á HM 2023 fengu 1.560.000 Bandaríkjadali hver í sinn hlut, eða jafnvirði um 190 milljóna króna á gengi dagsins í dag. Hækkunin er því umtalsverð á milli móta. Af þessari lágmarksupphæð beindi FIFA þeim tilmælum til aðildarsambanda að greiða hverjum leikmanni 30.000 dali eða 3,6 milljónir króna á gengi dagsins og verða sambærileg tilmæli að þessu sinni.

Fyrsta HM félagsliða í Bandaríkjunum

FIFA tilkynnti einnig í dag að fyrsta heimsmeistaramót kvennafélagsliða yrði haldið í Bandaríkjunum en það fer fram dagana 5.-30. janúar árið 2028.

Sjö lið hafa þegar unnið sig inn á mótið en það er árangur á árunum 2024-2027 sem skilar liðum þangað. Evrópumeistarar síðustu þriggja ára, Barcelona (tvisvar) og Arsenal, eru því komin inn á mótið sem og Club America frá Mexíkó, Gotham FC frá Bandaríkjunum, Naegohyang frá Norður-Kóreu, Corinthians frá Brasilíu og Wuhan Jiangda frá Kína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×