Fótbolti

„Þetta voru meira en von­brigði“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Carrick, þjálfari Manchester United, sést hér ganga af velli eftir tapið í Como í kvöld.
Michael Carrick, þjálfari Manchester United, sést hér ganga af velli eftir tapið í Como í kvöld. AP/Antonio Calanni

Michael Carrick, þjálfari Manchester United, fór ekkert í felur með það að 4-1 skellurinn á móti Como í Meistaradeildinni í kvöld var áfall fyrir enska félagið. United var hræðilegt í leiknum og mark undir lokin breytti litlu. Þjálfarinn bað stuðningsmenn félagsins afsökunar.

„Þetta voru meira en vonbrigði. Ég held að allir þurfi að axla ábyrgð á þessu. Ég axla ábyrgð á liðinu í heild sinni og frammistöðunni, ábyrgðin liggur hjá mér og ég sætti mig við það. En sem stuðningsmaður þessa knattspyrnufélags verð ég að segja að það er óásættanlegt að sjá svona frammistöðu,“ sagði Michael Carrick strax eftir leikinn.

„Ég mun fara yfir það sem við höfum gert. Það eru hvatningin, tilgangurinn og ákefðin sem maður þarf að koma með inn í fótboltaleik. Við komum ekki með það í dag. Maður getur ekki valið hvenær maður vill standa sig og hvenær ekki, hvenær maður gefur algjörlega allt og hvenær kannski ekki,“ sagði Carrick.

„Mér þykir ótrúlega vænt um stuðningsmennina. Þeir eru hjartsláttur þessa knattspyrnufélags og verða það alltaf. Ég verð að biðjast afsökunar á frammistöðunni. Eftir allt sem þeir lögðu á sig til að komast hingað í kvöld, að þeir hafi þurft að horfa á þessa frammistöðu í kvöld – ég finn til með þeim,“ sagði Carrick.

„Kvöldið í kvöld snýst ekki um mig. Það snýst um að melta leikinn og hvernig hann fór. Það er það mikilvægasta núna,“ sagði Carrick.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×