Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Regalo 23. október 2026 08:22 Margar konur fjárfesta í vönduðum og jafnvel dýrum hitamótunartækjum, leggja mikinn metnað í greiðsluna en skilja svo ekkert í því hvers vegna hún endist ekki. Fríða Rut Heimisdóttir hárgreiðslumeistari gefur góð ráð. Þú stendur fyrir framan spegilinn, nýbúin að eyða góðum tíma í að blása hárið. Það er fullt af lífi með dásamlegri lyftingu, fyllingu og fallegri hreyfingu eða kannski ertu búin að móta þessar fullkomnu, mjúku krullur sem þú varst að vonast eftir. Þú ert hæstánægð með útkomuna. Klukkutíma síðar er lyftingin horfin, hárið orðið flatt og líflaust og krullurnar nánast horfnar. Öll vinnan fyrir lítið. Fríða Rut Heimisdóttir, hárgreiðslumeistari og eigandi Regalo gefur hér góð ráð.
Hljómar kunnuglega? Þetta er eitt algengasta vandarmálið sem ég heyri þegar kemur að hármótun. Margar konur fjárfesta í vönduðum og jafnvel dýrum hitamótunartækjum, leggja mikinn metnað í greiðsluna en skilja svo ekkert í því hvers vegna hún endist ekki. Vissulega eigum við Íslendingar við sérstakan andstæðing að etja þegar kemur að hárinu. Raki, vindur og síbreytilegt veður geta verið algjör martröð fyrir nýblásið hár og fallegar krullur. Það er ekki alltaf hægt að kenna íslenska veðrinu um því sannleikurinn er sá að jafnvel besta hitamótunartækið getur ekki eitt og sér tryggt að greiðslan haldist. Það sem skiptir sköpum er það sem þú gerir áður en þú byrjar að blása, krulla eða móta hárið. Þú getur nefnilega mótað hárið eins fallega og þú vilt en ef grunnurinn er ekki réttur er lítið sem heldur mótuninni uppi. Hárið þarf sína eigin „skincare-rútínu” Hugsum aðeins um húðumhirðuna okkar og förðunina. Við eigum rakakrem, serum, primer, farða, kinnalit, augnskugga,setting spray og margt fleira til að tryggja að förðunin haldist falleg yfir daginn. Við kaupum mismunandi vörur fyrir mismunandi tilgang og finnst það fullkomlega eðlilegt. Hvers vegna hugsum við ekki eins um hárið? Við kaupum okkur jafnvel rándýran hitamótunarbursta eða krullujárn en þegar kemur að því að fjárfesta í vörunum sem eiga að hjálpa greiðslunni að haldast þá viljum við helst að ein vara geri allt! Myndum við ætlast til þess að eitt andlitskrem kæmi í staðinn fyrir allar húð og förðunarvörurnar okkar? Varla. Af hverju gerum við þá sömu kröfu til hársins? Rétt eins og góð húðumhirða og falleg förðun byggjast upp á nokkrum skrefum þarf hárið sinn undirbúning. Ein vara gefur fyllingu, önnur mótunarstuðning, hitavörn hjálpar til við að verja hárið og lokavörurnar sjá um áferð, festu og glans. Hugsaðu um þetta eins og að byggja hús. Þú byrjar ekki á þakinu áður en grunnurinn er kominn! Samt er það nákvæmlega það sem við gerum þegar við krullum óundirbúið hár og úðum svo hárspreyi yfir í þeirri von að allt haldist á sínum stað. Hér kemur lykilatriðið: Það er ekki til ein töfravara sem hentar öllum.Fíngert og mjúkt hár þarf allt annan undirbúning en þykkt, gróft eða náttúrulega krullað hár. Leyndarmálið er ekki að nota sem flestar vörur heldur að velja réttu vörurnar og nota þær í réttri röð ásamt því láta þær vinna saman. Grunnurinn byrjar í röku hári, hér verður mótunin til Hefur þú velt því fyrir þér hvers vegna blásturinn hjá hárgreiðslufólkinu helst oft mun betur en þegar þú blæst hárið sjálf heima? Svarið liggur ekki eingöngu í hárblásaranum eða burstanum heldur líka í því sem við setjum í hárið áður en blásturinn hefst. Rétt undirbúið hár hefur betri forsendur til að halda lyftingu, fyllingu og þeirri lögun sem við mótum með hitanum. Hár er jafnmisjafnt eins og við erum mörg. Sumar konur eru með fíngert hár sem fellur niður á nokkrum mínútum, aðrar með þykkt hár sem þarf meiri stjórn og enn aðrar með náttúrulega liði eða krullur sem þær vilja draga fram. Þess vegna skiptir máli að velja mótunarvörur út frá hárgerðinni og því hvaða árangri við viljum ná. Fíngert hár Fíngert hár þarf gjarnan léttar mótunarvörur sem byggja upp fyllingu án þess að þyngja það. Hér viljum við sérstaklega skapa lyftingu við hárrótina og gefa lengdunum meiri mótunarstuðning. Góðir kostir eru Maria Nila Pure Volume Mousse, Maria Nila Volume Spray, JOICO JoiFull Volumizing Styler,Moroccanoil Root Boost og Matrix High Amplify Foam sem hjálpa til við að skapa fyllingu og lyftingu. Normal hár Venjulegt hár getur verið fallega mjúkt en samt átt erfitt með að halda blæstri eða krullum. Þá viljum við mótunarvörur sem gefa hárinu grip og festu án þess að gera það óþarflega þungt. Maria Nila Styling Mousse, JOICO JoiWhip 7 og Matrix Food For Soft XXL Big N' Soft Mousse eru góð dæmi um vörur sem hjálpa til við að byggja upp góðan mótunarstuðning og fyllingu. Hér er eitt fagráð sem ég vil sérstaklega leggja áherslu á: þegar við viljum að liðir, krullur eða uppsett greiðsla haldist allan daginn er ekki alltaf best að velja vörur sem gera hárið silkimjúkt. Í fermingar og brúðargreiðslum þarf grunnurinn gjarnan að hafa aðeins meiri stífleika og grip svo greiðslan haldi lögun sinni klukkustundum saman. Þykkt hár Þykkt hár þarf annars konar undirbúning. Þar er markmiðið gjarnan að ná stjórn á úfningi,frizzi, auðvelda blásturinn og skapa fallega hreyfingu án þess að hárið verði of fyrirferðarmikið. Þegar liðir, krullur eða uppsett greiðsla eiga að haldast lengi þarf jafnframt góðan mótunargrunn. JOICO Dream Blowout Glass 72HR Frizz Fighter hjálpar til við að draga úr frizzi ásamt úfningi. Varan þarf hita frá hárblásara til að virkjast og hjálpar til við að verja hárið gegn áhrifum raka í allt að 72 klukkustundir. Redken Quick Blowout flýtir fyrir blæstri, auðveldar mótun hársins og veitir hitavörn. Hún hjálpar jafnframt til við að draga úr úfningi og gefur hárinu fallega, mjúka og glansandi áferð. Kérastase L'Incroyable Blowdry Hair Lotion gefur stjórn og sveigjanlega mótun og hentar fjölbreyttum hárgerðum. Þegar við viljum meiri festu og grip er Matrix Setter Mousse áhugaverður kostur sem hjálpar til við að byggja upp fyllingu og mótunarstuðning. Moroccanoil Volumizing Mousse gefur einnig fallega fyllingu og sveigjanlega festu, en fyrir náttúrulega krullað hár er Moroccanoil Curl Control Mousse góður kostur til að draga fram krullurnar og halda úfningi í skefjum. Eftir blásturinn – mótunin sjálf Þegar grunnurinn er tilbúinn kemur að mótuninni. Hvort sem þú notar krullujárn, sléttujárn eða hitamótunarbursta skiptir rétt tækni ekki síður máli en tækið sjálft. Hitavörn er nauðsynleg áður en hitamótun hefst.Ef þú hefur ekki þegar notað vöru sem veitir viðeigandi hitavörn er mikilvægt að bæta henni við áður en þú notar hitatækin. Mikill hiti getur þurrkað hárið, veikt það og aukið hættu á að það brotni. Hitavörn hjálpar til við að draga úr þeim skemmdum. Einnig eru líka til skemmtilegar vörur sem gera meira en að verja hárið.L’Oréal Professionnel Pli hefur slegið í gegn á TikTok og ekki að ástæðulausu. Þessi hitavirkjaða mótunarvara er algjör snilld þegar kemur að því að skapa fallega, endingargóða liði og krullur. Hún gefur hárinu fyllingu, grip og mótunarstuðning sem hjálpar greiðslunni að halda lögun sinni. Maria Nila Shaping Heat Spray er önnur áhugaverð vara sem sameinar hitavörn og mótunarstuðning. Hún virkjast við hita og hjálpar til við að móta hárið og gefa því betri festu. Moroccanoil Perfect Defense er hins vegar fiðurlétt hitavörn sem má nota bæði í rakt og þurrt hár til að verja gegn hitaskemmdum. Redken Thermal Spray High Hold sameinar hitavörn og sterka mótunarfestu og hentar þegar við viljum meira hald. Létt hársprey á meðan þú mótar Hársprey er ekki eingöngu lokaskref. Þegar við erum að vinna með krullur og sveigjur getur verið gagnlegt að nota létt eða miðlungssterkt vinnusprey sem veitir stuðning án þess að gera hárið strax stíft. Maria Nila Styling Spray, Moroccanoil Luminous Hairspray Medium og JOICO Flip Turn eru góð dæmi um slíkar vörur. Þær gefa létt hald og henta vel þegar við viljum geta haldið áfram að vinna með greiðsluna og varðveita náttúrulega hreyfingu. Þegar hárið þarf meira grip Hér erum við komin að vörum sem ég tel að nánast allir ættu að eiga í baðherbergisskápnum sínum! Áferðarvörur geta gert algjöran gæfumun, sérstaklega þegar hárið er mjúkt, erfitt að móta og greiðslan á það til að falla niður. Þær gefa hárinu þetta mikilvæga grip sem auðveldar okkur að móta það í þá átt sem við viljum. Þær eru sérstaklega frábærar þegar við erum að setja hárið upp í greiðslu eða flétta það því þær gera hárið meðfærilegra, auðvelda okkur að ná stjórn á því og hjálpa greiðslunni að haldast betur. Moroccanoil Dry Texture Spray, JOICO Hair Shake og Redken Touchable Texture eru frábær dæmi um slíkar vörur. Þetta eru sannkallaðar hjálparhellur í hármótun sem gefa fyllingu, áferð og grip án þess að gera hárið óþarflega stíft. Lokaspreyið þegar greiðslan er tilbúin Nú er komið að lokahnykknum eftir góðan undirbúning. Við viljum að mótunin okkar haldist eins lengi og mögulegt er. Rétt lokasprey getur skipt sköpum, sérstaklega í íslenskri veðráttu þar sem raki og vindur geta fljótt sett strik í reikninginn. Maria Nila Finishing Spray er frábær kostur þegar við viljum góða festu án þess að hárið verði óþarflega stíft. Þegar við þurfum hins vegar hámarksfestu, til dæmis fyrir uppsettar greiðslur, fermingar eða brúðkaup er Maria Nila Extreme Spray öflugur kostur.Svo eru það sérhæfðu spreyin sem geta gert gæfumuninn. Redken Control Hairspray gefur sterka festu og hjálpar til við að verja greiðsluna gegn áhrifum raka á meðan Redken Anti-Frizz Hairspray hjálpar til við að halda frizzi í skefjum. Mundu að það er munur á vinnuspreyi og lokaspreyi. Vinnusprey hjálpar okkur á meðan við mótum hárið en lokaspreyið sér um að festa útkomuna. Þegar greiðslan þarf að haldast heilan dag af veisluhöldum, dansi og íslenskri veðráttu eru extra strong-sprey það sem þarf. Hárolíur fallegur lokapunktur Nú kemur eitt af mínum uppáhaldsskrefum í hármótuninni! Hárolíur eru ekki bara fyrir þurrt hár eða til að gefa því næringu. Þær geta verið algjör galdur þegar við viljum fullkomna greiðsluna, losa um krullurnar, móta fallega, mjúka liði og gefa hárinu þennan dásamlega, fágaða glans. Kérastase Gloss Absolu Glaze Drops, Maria Nila CICA Oil og Moroccanoil Treatment Light eru léttir valkostir sem henta vel þegar við viljum gefa fíngerðu hári glans án þess að þyngja það of mikið. Kérastase Elixir Ultime L’Huile Originale, JOICO Luster Lock Glossing Oil og Moroccanoil Treatment Original gefa hárinu fallega mýkt og glans og hjálpa til við að halda úfningi í skefjum. Fagráð: þegar krullurnar hafa kólnað alveg seturðu örfáa dropa af olíu í lófana og nuddar þeim saman. Renndu síðan fingrunum varlega í gegnum krullurnar og losaðu um þær þar til þú færð þessar fallegu, mjúku sveigjur sem við elskum svo mikið.Þannig fær hárið fallegan glans um leið og þú mótar lokaútkomuna. Farðu þó varlega með magnið, sérstaklega í fíngerðu hári því of mikil olía getur þyngt hárið og dregið úr lyftingu og fyllingu. Leyndarmálið liggur í heildinni Falleg og endingargóð hármótun byrjar með réttum undirbúningi. Mótunarvörurnar skapa grunninn, hitatækin gefa hárinu þá lögun sem við viljum og lokavörurnar fullkomna greiðsluna með fallegri áferð, festu og glans. Rétt eins og í húðumhirðu og förðun skiptir máli að hvert skref vinni með því næsta. Þegar þessi skref vinna saman verður miklu auðveldara að ná fram fallegum blæstri, mjúkum sveigjum og krullum sem halda sér lengur. Leyndarmálið liggur því ekki bara í því hvernig þú krullar hárið, heldur í undirbúningnum og hvernig þú lýkur greiðslunni. Fylgdu okkur á samfélgasmiðlunum: Regalofagmenn
Hár og förðun Mest lesið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Fleiri fréttir Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Sjá meira