Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sindri Sverrisson skrifar 22. október 2026 12:01 Merijn Geerts og Ivo Steyaert eru bestu bakgarðshlauparar heims. Skjáskot/Youtube Belgísku ofurhlaupararnir Merijn Geerts og Ivo Steyaert skráðu nafn sitt enn á ný í sögubækur bakgarðshlaupa nú í hádeginu þegar þeir settu nýtt heimsmet með því að hlaupa sinn 120. hring á heimsmeistaramóti landsliða.
Belgarnir luku 120. hringnum nú rétt fyrir klukkan 12 við gríðarlegan fögnuð landa sinna. Þeir eru hins vegar ekki hættir og héldu af stað í 121. sinn. Þó að síðustu fulltrúar Íslands hafi hætt að hlaupa fyrir rúmum tveimur sólarhringum, sem skilaði Íslandi 20. sæti af 67 þjóðum, þá stendur HM enn yfir því Belgarnir tveir hafa haldið áfram að hlaupa sinn 6,7 kílómetra hring samfleytt í 120 klukkustundir, eða nákvæmlega fimm sólarhringa. Þeir urðu þar með fyrstir í sögunni til að hlaupa yfir 800 kílómetra í bakgarðshlaupi, eða nákvæmlega 804 kílómetra, og hafa bætt heimsmet Ástralans Phil Gore sem sett var í fyrra. Báðir eru þeir á sextugsaldri því Geerts er 52 ára en Steyaert 56 ára. Þrátt fyrir magnaðan árangur þeirra Geerts og Steyaert þyrftu þeir að halda áfram að hlaupa lengi enn til að Belgía gæti unnið HM. Fimmtán fulltrúar eru í hverju landsliði og hafa Bandaríkjamenn hlaupið lengst eða samtals 1.120 hringi. Ástralía er í 2. sæti með 1.069 hringi og Belgía nú með 1.050 hringi í 3. sæti. Belgarnir þyrftu því að hlaupa saman tíu hringi í viðbót til að ná Ástralíu og í einn og hálfan sólarhring til að ná Bandaríkjunum. Íslenska landsliðið hljóp samtals 559 hringi. Líka fyrstir til að hlaupa hundrað hringi Geerts hefur nú sex sinnum farið yfir 100 hringi í bakgarðshlaupi, oftast allra, og Steyaert fjórum sinnum. View this post on Instagram A post shared by Legends Backyard Belgium (@backyardbelgium) Geerts setti fyrst heimsmet með því að hlaupa 90 hringi árið 2022 og þeir Steyaert urðu svo fyrstir til að rjúfa 100 hringja múrinn á HM fyrir fjórum. Þeir bættu þann árangur sinn aftur og hlupu 110 hringi fyrir tveimur árum en þá var Frank Gielen þriðji maður með þeim. Í bæði þessi skipti hafa Belgarnir hætt á sama tímapunkti og því fagnað sigri saman í stað þess að einn standi uppi sem sigurvegari. Síðan þá hafa Pólverjinn Lukasz Wróbel (116 hringir) og Ástralinn Phil Gore (119 hringir) hins vegar sett ný heimsmet en nú er metið aftur í eigu Belganna.
Bakgarðshlaup Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Ömurleg menning hjá Man. Utd Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Er skrefareglan dauð í NBA? Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Dagskráin: Skiptiborðið, stórleikur í körfunni og Íslendingar í Evrópu Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ „Þetta er bara einn leikur í einu“ Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Sjá meira