Erlent

Sænskur glæpa­foringi á­kærður fyrir þrjú morð

Kjartan Kjartansson skrifar
Galiyev er talinn hafa skipað fyrir um sprengjutilræði í Fullerö norður af Uppsölum í september 2023. Kona á þrítugsaldri lést en meðlimur Foxtrot-glæpahópsins var sagður búa í húsinu.
Galiyev er talinn hafa skipað fyrir um sprengjutilræði í Fullerö norður af Uppsölum í september 2023. Kona á þrítugsaldri lést en meðlimur Foxtrot-glæpahópsins var sagður búa í húsinu. Vísir/EPA

Saksóknarar í Svíþjóð hafa ákært foringja glæpasamtaka fyrir fjölda ofbeldisverka, þar á meðal þrjú morð. Samtökin hafa eldað grátt silfur með Foxtrot, öðrum alræmdum glæpasamtökum, undanfarin ár.

Ildar „Örvar“ (e. Scar) Galiyev er meðal annars sagður bera ábyrgð á sprengjutilræði í Uppsölum sem varð 24 ára gamalli konu að bana, morði á átján ára gömlum pilti í Mälarhöjden í Stokkhólmi og öðru sprengutilræði í raðhúsi í Hässelby. Öll tilræðin áttu sér stað árið 2023.

Galiyev er 26 ára gamall og leiðtogi Dalen-samtakanna. Hann neitar allri sök.

Alls er Galiyev grunaður um aðild að rúmlega tuttugu alvarlegum glæpum, að sögn sænska ríkisútvarpsins. Hann var framseldur frá Grikklandi til Svíþjóðar í fyrra. Saksóknarar telja að ofbeldisverkin tengist átökunum Dalen og Foxtrot.

Hann er þó ekki talinn hafa framið flest ódæðanna sjálfur heldur skipað fyrir um þau. Í sumum tilfellum hafi ungmenni verið fengin til þess að vinna skítverkin fyrir samtökin.

Mögulegt er talið að málin gegn Galiyev verði rekin sameinlega fyrir dómi. Sænska ríkisútvarpið segir það afar óvenjulegt þegar um sé að ræða slíkan fjölda alvarlegra afbrota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×