Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar 20. október 2026 15:00 Í frétt sem birtist á Vísi undir fyrirsögninni „Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi“ er fjallað um vaxandi notkun geðrofslyf I stað svefnlyfs, meðal annars hjá eldra fólki. Geðrofslyf er í auknum mæli notað við svefnvandamálum þrátt fyrir að vera ekki hefðbundið svefnlyf. Fréttin vakti hjá mér spurningar sem snúa ekki eingöngu að læknisfræði heldur að samfélagsgerð, uppeldi og þeirri tilfinningamenningu sem stór hluti þessarar kynslóðar ólst upp við og tók síðar sjálfur þátt í að viðhalda. Hvað ef við erum að horfa upp á afleiðingar menningar þar sem fólki var kennt að bæla niður eigin tilfinningar, skammast sín fyrir sársauka og sanna styrk sinn með því að sýna öðrum hörku? Hvað ef hluti þeirrar vanlíðanar sem birtist á efri árum á rætur í áratugalangri aðlögun að samfélagi þar sem niðurlæging var kölluð húmor, tilfinningaleg vanræksla talin uppeldi og hæfileikinn til að þola grimmd annarra gerður að mælikvarða á mannlegan styrk? Ég er ekki að halda því fram að lyfjanotkun sanni slíkt orsakasamband. En ég tel fulla ástæðu til að skoða hvort við séum stundum að meðhöndla afleiðingar samfélagslegra hegðunarmynstra án þess að þora að ræða menninguna sem mótaði þau. Þegar niðurlæging var kölluð uppeldi Baby Boomers, eða Boomers-kynslóðin, fædd á árunum 1946 til 1964, ólst að verulegu leyti upp í samfélagi þar sem vald fullorðinna var sjaldan dregið í efa og börnum var kennt að hlýða fremur en að tjá sig. Það var ekki sjálfgefið að tilfinningar barna væru teknar alvarlega og enn síður að þau hefðu rétt til að mótmæla framkomu fullorðinna. Þvert á móti gat sá sem sýndi sársauka, móðgun eða ótta átt á hættu að verða sjálfur gerður að athlægi. Að vera viðkvæmur var ekki talið merki um heilbrigða tilfinningalega úrvinnslu heldur veikleika sem þyrfti að uppræta. Það átti að herða fólk, helst áður en lífið sjálft fengi tækifæri til þess. En þessi menning hafði aðra og mun skuggalegri hlið. Hún kenndi fólki ekki aðeins að fela eigin sársauka heldur gat hún líka kennt því að öðlast félagslega yfirburði með því að valda öðrum sársauka. Stríðni, háðsglósur, opinber niðurlæging og kjaftasögur voru víða samþykkt sem eðlilegur hluti félagslegra samskipta, svo lengi sem gerendurnir höfðu nægilega sterka stöðu innan hópsins. Það var ekki hegðun þess sem niðurlægði sem var dregin í efa heldur viðbrögð þess sem varð fyrir niðurlægingunni. Ef viðkomandi sýndi að honum hefði sárnað var það notað sem frekari sönnun fyrir veikleika hans. Þannig var ábyrgðinni snúið við og gerandinn gat haldið áfram, jafnvel með samþykki og hlátri þeirra sem stóðu í kring. Þetta er einmitt sú hópdýnamík sem mér finnst hafa fengið allt of litla athygli í umræðu um kynslóðabundið ofbeldi. Í slíkri menningu verður niðurlæging að félagslegum gjaldmiðli. Sá sem getur gert lítið úr öðrum án þess að missa stöðu sína sýnir hópnum að hann hafi vald, en sá sem neitar að taka þátt eða mótmælir framkomunni á á hættu að verða næsta skotmark. Þarna verður til samfélagslegt stigveldi þar sem fólk lærir fljótt að öruggasta leiðin til að tilheyra er ekki endilega að vera góð manneskja heldur að vera réttu megin við hláturinn. Og þegar slíkt hegðunarmynstur festir rætur innan fjölskyldna, vinahópa og jafnvel stofnana getur það viðhaldist kynslóð eftir kynslóð án þess að nokkur beri ábyrgð. Allir vita hvað er að gerast en enginn vill vera sá sem eyðileggur stemninguna með því að nefna það. Að brjóta aðra niður til að hylja eigin vanlíðan Það sem mér finnst þó einna alvarlegast er hvernig fólk sem sjálft hafði orðið fyrir þessari meðferð gat síðar farið að verja hana af mikilli hörku. Það er sálfræðilega skiljanlegt, þótt það sé engan veginn réttlætanlegt. Ef einstaklingur hefur varið stórum hluta ævinnar í að sannfæra sjálfan sig um að niðurlægingin sem hann varð fyrir hafi gert hann sterkari getur verið ógnvekjandi að þurfa að horfast í augu við þann möguleika að hún hafi í raun skaðað hann. Þá þarf hann ekki aðeins að endurskoða uppeldið heldur jafnvel alla þá sjálfsmynd sem hann hefur byggt á því að hafa þolað það. Það er mun þægilegra að halda því fram að hörkunni hafi fylgt einhver göfugur tilgangur og að þeir sem ekki þoli sömu meðferð séu einfaldlega orðnir of viðkvæmir. Þannig verður ofbeldið að eins konar erfðagrip sem gengur á milli kynslóða. Sá sem var niðurlægður sem barn réttlætir niðurlægingu eigin barna með því að vísa í að hann hafi sjálfur haft gott af henni. Sá sem þurfti að bæla eigin tilfinningar telur börn sín of tilfinningasöm þegar þau gera kröfu um virðingu. Og sá sem lærði að sanna styrk sinn með því að brjóta aðra niður getur átt erfitt með að skilja hvers vegna næsta kynslóð neitar að taka þátt í leiknum. Gen X … kynslóðin sem átti að þegja og halda leiknum áfram Svo kom Generation X, eða Gen X, kynslóðin sem fæddist á árunum 1965 til 1980. Við erum mörg börn þessarar menningar og höfum þurft að vinna okkur út úr henni, hvert með sínum hætti. Sum okkar tóku hegðunarmynstrið upp og héldu því áfram, enda getur verið auðveldara að aðlagast ríkjandi valdi en að standa gegn því. Önnur fóru að sjá í gegnum leikinn og átta sig á því að það sem hafði verið kennt sem styrkur var í mörgum tilvikum ekkert annað en tilfinningabæling, ótti við höfnun og þörf fyrir að stjórna öðrum. Það var ekki endilega skortur á húmor að neita að hlæja að niðurlægingu annarra. Það gat verið merki um samkennd, sjálfstæða hugsun og siðferðilegan styrk. En fyrir þá sem höfðu alla tíð notið góðs af gömlu reglunum var þessi breyting ekki endilega velkomin. Þegar fullorðin börn fóru að setja mörk, hafna niðurlægjandi samskiptum og krefjast ábyrgðar á framkomu sem áður hafði verið látin óátalin var það gjarnan túlkað sem uppreisn, vanþakklæti eða óþarfa viðkvæmni. Í sumum fjölskyldum varð það jafnvel tilefni til frekari útilokunar, kjaftasagna og tilrauna til að gera þann sem setti mörkin tortryggilegan í augum annarra. Þetta er þekkt valdabragð í óheilbrigðri hópdýnamík: Þegar ekki tekst lengur að stjórna einstaklingnum með gömlu aðferðunum er reynt að stjórna því hvernig aðrir sjá hann. Þegar börnin hætta að hlýða missir gamla valdið fótfestuna Og hér finnst mér við komast að einum mikilvægasta þætti málsins. Það getur verið gríðarlega ógnandi fyrir manneskju sem hefur byggt félagslega stöðu sína á yfirráðum, hörku og óskráðum reglum hópsins að mæta einstaklingi sem neitar að viðurkenna þær reglur. Ekki vegna þess að sá einstaklingur sé endilega árásargjarn eða ósanngjarn, heldur vegna þess að hann afhjúpar hversu háð kerfið er samþykki þeirra sem verða fyrir því. Um leið og einhver hættir að hlæja með, hættir að þegja og hættir að taka ábyrgð á vanlíðan þeirra sem niðurlægja hann, byrjar valdakerfið að riðlast. Þá er athyglisvert að skoða hvað gerist þegar kynslóð sem hefur að hluta alist upp við þessi viðmið eldist. Félagsleg staða breytist, starfsævinni lýkur, heilsan getur versnað og fjölskyldutengsl taka á sig nýja mynd. Börnin eru orðin fullorðin og hafa sjálf vald til að ákveða hvers konar samskipti þau vilja eiga við foreldra sína. Sum kjósa að draga sig í hlé eða slíta jafnvel tengslum þegar þau telja að mörk þeirra séu ítrekað brotin. Fyrir foreldri sem hefur alla tíð talið sig hafa rétt til að skilgreina reglur samskiptanna getur slíkt verið gríðarlegt áfall. Það sem foreldrið upplifir sem höfnun getur barnið upplifað sem nauðsynlega sjálfsvernd. En hér vaknar spurning sem mér finnst samfélagið forðast að ræða. Hvað verður um fólk sem hefur aldrei lært að vinna úr eigin skömm, sorg og ótta öðruvísi en með því að bæla tilfinningarnar niður eða varpa vanlíðan sinni yfir á aðra? Hvað gerist þegar það missir áhrifin, áhorfendurna eða fjölskyldumeðlimina sem áður tóku þátt í að viðhalda þeirri sjálfsmynd að það væri sterkt, ósnertanlegt og hefði alltaf haft rétt fyrir sér? Hvernig tekst manneskja á við einmanaleika þegar hún hefur jafnvel eytt áratugum í að gera lítið úr þeim tilfinningum sem fylgja því að vera einmana? Þegar harðneskjan dugar ekki lengur….hvað heldur fólki vakandi? Ég tel að þarna sé rannsóknarefni sem eigi skilið mun meiri athygli. Ekki vegna þess að allir Boomers séu tilfinningalega bældir eða að allir sem nota svefnlyf hafi orðið fyrir áföllum. Slíkar alhæfingar væru bæði ósanngjarnar og fræðilega óverjandi. Heldur vegna þess að við vitum að langvarandi streita, áföll, einmanaleiki og erfið tengsl geta haft djúpstæð áhrif á geðheilsu og svefn. Ef við viljum skilja vanlíðan fólks á efri árum verðum við því að þora að skoða meira en líffræðilegar breytingar og lyfjameðferð. Við þurfum líka að spyrja hvaða félagslegu reglur fólk lærði, hvaða tilfinningar það mátti sýna og hvað það þurfti að gera til að fá að tilheyra. Það er auðvelt að ávísa lyfi við svefnvandamálum þegar klínískar forsendur eru fyrir því. Mun erfiðara getur verið að opna samtal um áratugalanga tilfinningabælingu, rofin fjölskyldutengsl og þá staðreynd að sumt fólk hefur aldrei fengið eða leyft sér að vinna úr eigin sársauka. Það þýðir ekki að lyf séu óþörf eða að læknar geti leyst öll félagsleg vandamál. En það ætti að vera okkur umhugsunarefni ef við erum tilbúin að meðhöndla svefnleysið án þess að hafa nægan áhuga á því sem heldur fólki vakandi. Þegar harðneskjan missir tilgang sinn Það sem mér finnst standa eftir er ekki spurningin um hver hafi verið sterkur og hver veikur, heldur hvað við ætlum að gera við þá menningu sem kenndi fólki að fela eigin sársauka og stundum beina honum að öðrum. Við getum sýnt skilning á því hvers vegna fólk lærði þessa hegðun án þess að samþykkja hana áfram. Það er engin mótsögn í því að bera hlýhug til eldri kynslóðarinnar og gera jafnframt kröfu um að hún axli ábyrgð á því sem hún hefur skilað áfram. Kannski er stærsta breytingin einmitt sú að við erum farin að skilja að kærleikur felst ekki í því að þegja yfir því sem særir. Hann felst líka í því að þora að segja sannleikann, setja mörk og gefa öðrum tækifæri til að breytast. Og það tækifæri er ekki bundið við ákveðinn aldur. Það er aldrei of seint að horfast í augu við eigin sögu, viðurkenna sársauka og hætta að láta hann ganga í erfðir. Höfundur er ljósmyndari, nemi í félagsráðgjöf, með bakgrunn í mannréttindum og samfélagmálum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun