Sport

Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas

Stefán Árni Pálsson skrifar
TIndastóll mætir Sindra á föstudagskvöldið á Höfn.
TIndastóll mætir Sindra á föstudagskvöldið á Höfn.

Tindastólsmenn hafa samið við körfuboltamanninn Nemanja Đurišić. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en Nemanja á að koma inn í liðið fyrir Adomas Drungilas sem meiddist illa í fyrstu umferð Bónus-deildarinnar. Hann braut þá tvö bein í fæti.

Nemanja er 2,03 metrar á hæð og getur spilað sem framherji og miðherji. Hann er með mikla reynslu og er 34 ára.

Hann lék háskólakörfubolta með University of Georgia í Bandaríkjunum áður en atvinnumannaferillinn hófst árið 2015. Síðan hefur hann leikið í sterkum deildum víða um Evrópu, meðal annars með Zielona Góra, þar sem hann var liðsfélagi Dee Bost, Telekom Baskets Bonn, Oostende, Beşiktaş, Estudiantes, Stal Ostrów Wielkopolski og Nizhny Novgorod. Hann hefur jafnframt verið hluti af landsliði Svartfjallalands.

Á ferlinum hefur Nemanja unnið meistaratitla í Póllandi og Belgíu, pólska bikarinn og Ofurbikarinn, auk ENBL-deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×