Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. október 2026 10:35 Heiðbjört og Markús hafa unnið að því að breyta stigahúsinu heima hjá sér í lítið gallerý og opna dyr þess á fimmtudaginn. Hjónin Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir og Markús Bjarnason hafa síðustu vikur unnið að því að breyta 122 ára gömlu stigahúsi við Holtsgötu í gallerý sem verður formlega opnað á fimmtudaginn. Gallerýið er á tveimur hæðum en er óvenjulegt að því leyti að það telur einungis sjö fermetra.
Stúdíó Suð er skapandi samstarf hjónanna Markúsar og Heiðbjartar Arneyjar en Markús er listamaður sem vinnur á mörkum myndlistar, hönnunar og hljóðs á meðan Heiðbjört sér um rekstur stúdíósins. „Okkur fannst eiginlega synd að láta þetta litla stigahús bara vera stigahús. Af hverju ekki að breyta því í gallerí? Og fyrst það er á tveimur hæðum, þá er spurning hvort þetta sé ekki minnsta tveggja hæða gallerí í heimi,“ segir Markús um gallerýið. Heiðbjört er dyggur stuðningsmaður hugmynda eiginmannsins, sama hve óvenjulegar þær eru „Markús fær alls konar hugmyndir og ég er yfirleitt til í að taka þátt í ævintýrinu. Okkur finnst báðum ótrúlega gaman að skapa og búa til skemmtilegar upplifanir,“ segir Heiðbjört og bætir við að hugmyndin að galleríinu hafi verið lengi í bígerð. View this post on Instagram A post shared by Stúdíó Suð (@studiosud.is) Fyndið að bjóða fólki inn í svona lítið rými Stigahúsið er á þeirra eigin heimili í gamla Vesturbænum sem þau hafa verið að gera upp undanfarin fjögur ár. Verkefnin hafa verið endalaus en nú sér loksins fyrir endann á framkvæmdum. „Það er alltaf hægt að gera eitthvað meira, breyta og bæta. En nú erum við loksins komin á þann stað að við erum búin að gera flest það sem þurfti að gera og farin að gera hluti sem okkur langar einfaldlega að gera,“ segir Markús. „Hugmyndin að galleríinu hefur verið hjá okkur í svolítinn tíma en það voru alltaf önnur verkefni sem þurftu að ganga fyrir. Þess vegna er sérstaklega gaman að sjá þetta loksins verða að veruleika,“ bætir Heiðbjört við. View this post on Instagram A post shared by Stúdíó Suð (@studiosud.is) Hjónin segjast hlakka til að opna dyrnar og bjóða fólki að kíkja við, hvort sem það eru nágrannar úr hverfinu eða almennir listáhugamenn. „Okkur langar að skapa skemmtilega og svolítið óvenjulega upplifun. Þetta er auðvitað pínulítið rými, en það er líka það sem gerir þetta svo skemmtilegt. Það er eitthvað svolítið fyndið við að opna tveggja hæða gallerí á aðeins sjö fermetrum,“ segir Markús. Stúdíóið hefur vakið athygli fyrir myndlist sem bætir hljóðvist rýma. Verkin eru í senn málverk og hljóðdeyfar, en nýlega hafa einnig bæst við málverk sem gefa frá sér hljóð. Í nýja galleríinu verður því hægt að bæði sjá og heyra myndlistina og upplif hvernig myndlist getur haft áhrif á hljóðvist rýmis. Galleríið opnar fimmtudaginn 22. október með opnunarhófi kl. 17–20 við Holtsgötu 5 í Reykjavík. Nánar má lesa um viðburðinn á viðburðavef Vísis.
Myndlist Reykjavík Menning Mest lesið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Sahara Ray látin Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Fleiri fréttir Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Stella í orlofi á stóra sviðið Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira