„Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sindri Sverrisson skrifar 18. október 2026 11:46 Mari Järsk hefur núna hlaupið í heilan sólarhring, tveimur mánuðum eftir barnsburð. vísir/Viktor Freyr „Hún er líklega best í því að komast í gegnum verki og þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup,“ segir Njörður Lúðvíksson, unnusti Mari Järsk, sem styður við sína konu í Elliðaárdalnum á HM í bakgarðshlaupi. Mari fæddi þeirra fyrsta son í ágúst síðastliðnum.
Það er í raun með algjörum ólíkindum að Mari sé mætt til keppni á HM í bakgarðshlaupi svo skömmu eftir barnsburð en ekki nóg með það þá hefur hún nú náð að hlaupa í heilan sólarhring, alls 160 kílómetra. Njörður segir það hafa verið sérstaklega erfitt að horfa á Mari pína sig í fyrstu bakgarðshlaupunum sem hann fylgdist með. Nú sé hann vanari en Mari hætti þó ekki að koma honum á óvart: „Mér finnst ótrúlegt í hvaða standi hún er. Ég átti ekki von á þessu,“ sagði Njörður í viðtali við Garp Elísabetarson og Tinnu Miljevic í rýminu sem keppendur nýta á milli hringja í hlaupinu. Viðtalið má sjá hér að neðan. Klippa: Eiginmaður Mari segir árangurinn ótrúlegan „Hún er alltaf að koma manni aftur og aftur á óvart. Maður skilur ekki neitt. Bara síðustu vikur fyrir þetta var hún mjög orkulítil og gat lítið æft en hlakkaði alveg til. Alltaf fiðringur að fara í þetta. En ég átti ekki von á að hún yrði svona lengi miðað við hvernig síðustu vikur hafa verið,“ sagði Njörður. „Hrikalega erfitt að horfa á það“ Njörður viðurkennir að það sé erfitt að sjá sína heittelskuðu Mari, núna barnsmóður sína, pína sig: „Það er alltaf erfitt. Eiginlega sérstaklega fyrstu skiptin sem ég var í kringum þessi bakgarðshlaup. Þá leið manni svakalega illa og skildi ekki að það væri bara verið að pína fólk. Svo náttúrulega venst þetta. Mér líður ekkert svo illa núna. Hún lítur bara vel út. Hefur oft litið miklu verr út en núna. Síðast þegar hún var hérna var hún með meiðsli í liðþófanum og þá leið mér mjög illa. Þá var bara verið að þjösnast á þessu. Hún var veik líka. Það var hrikalega erfitt að horfa á það,“ sagði Njörður. Verkirnir í fótunum toppa verki í grindinni Aðspurður hvernig Mari liði í mjaðmagrindinni á hlaupum svo skömmu eftir fæðingu sagði Njörður: „Það sem ég hef smá áhyggjur af er að hún fann eitthvað smá fyrir henni í nótt en svo sagði hún að sér væri orðið svo illt í löppunum að hún fyndi ekki fyrir því lengur. En ég treysti henni til að meta þetta sjálf. Hún er líklega best í því að komast í gegnum verki og þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup. Þegar þú ert kominn af stað er erfitt að segjast ætla að hætta. Vonandi hefur þetta engar afleiðingar. Við vonum það besta og að hún finni sína löngun til að stoppa. Hugsi kannski meira um sjálfa sig en hún hefur gert áður.“ Beina útsendingu og textalýsingu frá hlaupinu má sjá með því að smella hér.
Bakgarðshlaup Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum „Dómarinn var að gera sitt besta og þetta var hans besta“ Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Sjá meira