Sport

Nokkuð viss um að Ís­lands­metið verði slegið

Aron Guðmundsson skrifar
Ríkharður Árnason hefur skotist upp á stjörnuhimininn í Bakgarðshlaupunum á skömmum tíma.
Ríkharður Árnason hefur skotist upp á stjörnuhimininn í Bakgarðshlaupunum á skömmum tíma. Vísir/Viktor Freyr

Bakgarðshlauparinn Ríkarður Eyberg Árnason telur að Íslandsmetið verði slegið í yfirstandandi landsliðskeppni. 

Ríkarður mætti í viðtal til Garps og Tínnu í beinni útsendingu á Vísi núna fyrir níunda hring landsliðskeppninnar en íslenska landsliðið hleypur þessa stundina í Elliðaárdalnum. 

Ríkarður er ekki að keppa í þetta skipti en frábær árangur hans í Bakgarðshlaupinu í Heiðmörk í september síðastliðnum, þar sem að hann endaði í 2. sæti og hljóp 38, sér til þess að líkur hans á landsliðssæti í náinni framtíð séu góðar. 

Klippa: Telur að Íslandsmetið muni falla

Drengurinn liggur yfirleitt ekki á skoðunum sínum og er ekki hræddur við að tala digurbarkalega. Hann ætlar sér sjálfur á einhverjum tímapunkti að slá Íslandsmetið í Bakgarðshlaupum en telur að núverandi met, sem Þorleifur Þorleifsson á og stendur í 62 hringjum, muni falla í yfirstandandi keppni. 

Ríkarður hefur mikla trú á því að Þórdís Ólöf Jónsdóttir, ein af fimmtán landsliðshlaupurum Íslands, geti slegið metið. 

Brot úr skemmtilegu viðtali við Ríkarð má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni. Beina útsendingu frá Bakgarðshlaupinu má finna í eftirfarandi frétt:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×