Fótbolti

Vill draga Ronaldo aftur inn í lands­liðið

Valur Páll Eiríksson skrifar
Vitinha vill draga Ronaldo aftur inn í portúgalska hópinn.
Vitinha vill draga Ronaldo aftur inn í portúgalska hópinn. Getty

Portúgalski miðjumaðurinn Vitinha vonast til þess að Cristiano Ronaldo og landsliðsþjálfarinn Jorge Jesus nái að leysa ágreining sinn svo að stjarnan geti snúið aftur í portúgalska liðið.

Í nýafstöðnu landsleikjahléi yfirgaf hinn 41 árs gamli Ronaldo æfingabúðir portúgalska landsliðsins eftir að hafa lent upp á kant við Jorge Jesus vegna lítils spiltíma.

Ronaldo birti síðar afsökunarbeiðni til liðsfélaga sinna á samfélagsmiðlum en á sama tíma sakaði hann Jorge Jesus um að hafa „gengið á bak orða sinna“ gagnvart sér.

„Þetta var stormasamt landsleikjahlé – fullt af allskyns tilfinningum,“ sagði Vitinha, miðjumaður Paris Saint-Germain, eftir 4-2 sigur liðs síns á Manchester City í gærkvöld.

„Af minni hálfu vona ég bara að allt leysist á besta veg. Ég vona að hann [Ronaldo] snúi aftur og að allt fari vel. Sannleikurinn er sá að það er það sem við viljum öll. Ég vona að hann komi aftur og að allt verði leyst.“

Ronaldo sagði í heillangri yfirlýsingu sinni að hann tæki hverri þeirri refsingu sem portúgalska sambandið beitti honum vegna framgöngu sinnar. Hann sagðist vilja spila áfram fyrir landsliðið.

Vitinha spilaði alla fjóra leiki Portúgals í glugganum og liðið vann þá alla. Liðið á fram undan leiki við Danmörku og Wales í nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×