Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Valur Páll Eiríksson skrifar 15. október 2026 10:32 Simons gengur menntaveginn. Getty Xavi Simons stundar viðskiptanám við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum á meðan hann nær sér af krossbandsslitum.
Hinn 23 ára gamli Xavi Simons varð fyrir miklum vonbrigðum þegar hann sleit krossband í apríl síðastliðnum. Ekki aðeins var þannig strembnu fyrsta tímabili með Tottenham á Englandi lokið á undan áætlun heldur missti hann einnig af HM með hollenska landsliðinu. Simons hefur verið tekinn inn í Crossover into Business-námið við bandaríska háskólann, sem fer fram á netinu. Námið á að aðstoða fólk við tilfærslu á vinnumarkaði í viðskiptalífið, líkt og heiti þess ber með sér. Námskeiðið stendur yfir í eina önn var „hannað til að hjálpa atvinnuíþróttamönnum að vera betur undirbúnir fyrir viðskiptastörf meðan á virkum íþróttaferli þeirra stendur og að honum loknum“. Meistaranemar við Harvard Business School eru leiðbeinendur íþróttamannanna á meðan á náminu stendur. „Á meðan ég hef verið að jafna mig hef ég reynt að nýta tímann eins vel og mögulegt er,“ skrifaði Simons á LinkedIn. „Fótboltinn er enn í forgangi hjá mér, en ég vil líka halda áfram að læra og bæta mig utan vallar. Ég er ánægður að greina frá því að ég hef verið tekinn inn í Crossover Into Business-námið við Harvard Business School,“ skrifar Simons. Simons hitti meðal annars Jayson Tatum í Boston meðan hann fór vestur um haf vegna námsins.Harry How/Getty Images „Ég hef alltaf haft áhuga á fleiru en bara fótbolta. Ég vil skilja viðskiptahlið íþróttarinnar betur, læra af fólki úr ólíkum atvinnugreinum og halda áfram að þroskast sem manneskja,“ „Að snúa aftur á völlinn er enn mitt helsta forgangsatriði. Á sama tíma vil ég nýta þetta tímabil til að halda áfram að læra og fjárfesta í sjálfum mér utan fótboltans,“ skrifar Simons enn fremur. Simons bætti við að hann hefði dvalið í Bandaríkjunum undanfarnar vikur og heimsótt Harvard á meðan hann var í Boston. Í Boston varði Simons tíma með Jayson Tatum, framherja Boston Celtics í NBA-deildinni, og David Pastrnak, fyrirliða Boston Bruins, í NHL-deildinni.
Tottenham Hotspur Enski boltinn Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Fleiri fréttir Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Sjá meira