Innlent

Bor­kjarnar vegna Eyja­ganga gefa til­efni til bjart­sýni

Smári Jökull Jónsson skrifar
Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga ehf. og Eivind Grøv.
Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga ehf. og Eivind Grøv. Eyjagöng

Norskur jarðgangasérfræðingur sem lagði mat á borkjarna úr rannsóknarholum á Heimaey og á Landeyjarsandi í tengslum við möguleg jarðgöng til Vestmannaeyja segir kjarnana mun betri en hann hafi búist við.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eyjagöngum ehf. Norski jarðgangnasérfræðingurinn Eivind Grøv var staddur hér á landi á dögunum en hann er einn helsti ráðgjafi Eyjaganga ehf. við undirbúning verkefnisins.

Grøv var yfirvísindamaður hjá norsku rannsóknastofunni SINTEF og prófeossor við norska tækni- og vísindaháskólann NTNU. Þá er hann fyrrverandi varaforseti alþjóðasamtaka um jargangagerð (ITA) og hefur veitt ráðgjöf við verkefni í yfir tuttugu löndum.

Munu liggja á um 220 metra dýpi

Kjarnaboranir voru framkvæmdar á Eiðinu á Heimaey í sumar sem og á Landeyjasandi. Borholan á Heimaey náði 234 metra dýpi og holan í Landeyjasandi 291,5 metrum en í tilkynningu frá Eyjagöngum segir að fyrirhuguð göng til Eyja muni að stærstum hluta liggja á um 220 metra dýpi.

Í tilkynningunni segir jafnframt að kjarnarnir úr báðum holunum hafi reynst mjög góðir frá 160 metra dýpi og neðar.

„Kjarnarnir eru mun betri en ég hafði búist við og það lofar góðu. Þegar niðurstöður hafsbotnsrannsóknanna liggja fyrir fáum við heildstæðari mynd af berginu á allri gangaleiðinni,“ er haft eftir Eivind Grøv í tilkynningu Eyjaganga.

Tvö sjálfstæð fýsileikamöt unnin í framhaldinu

Íslenskar orkurannsóknir framkvæmdu hafsbotnsrannsóknir á gangaleiðinni í sumar en þá var notaður endurkastmælir til að kortleggja efstu jarðlögin undir hafsbotni. 

Unnið er að úrvinnslu ganganna en þegar niðurstöður þeirra rannsókna sem og greining borkjarnanna liggur fyrir fyrir verða unnin tvö sjálfstæð fýsileikamöt.

Haraldur með kjarnasýnin á Landeyjasandi.Eyjagöng

„Það skiptir okkur miklu máli að einn reyndasti jarðgangasérfræðingur Noregs hafi skoðað kjarnana sjálfur og að mat hans sé svo jákvætt. Tvö sjálfstæð fýsileikamöt, unnin af innlendum og norskum sérfræðingum, munu leggja traustan grunn að ákvörðunum um næstu skref,“ segir Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga ehf í tilkynningu fyrirtækisins.


Tengdar fréttir

Hefja borun rannsóknar­holu á Land­eyja­sandi í vikunni

Allur undirbúningur er nú á lokastigi og er allt klárt til að hefja fóðrun og kjarnaborun á rannsóknarholunni EG-02 á Landeyjasandi. Verkefnið er einn af lykilþáttunum í viðamiklum jarðfræðirannsóknum sem munu skera úr um fýsileika þess að gera jarðgöng á milli lands og Vestmannaeyja.

Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár

Stefnt er á að kjarnaborunum - í tengslum við jarðgangagerð til Vestmannaeyja - ljúki í lok árs. Framkvæmdastjóri Eyjaganga er ekki í vafa um að göngin séu arðbær og segir að ef allt gangi að óskum verði hægt að keyra á milli lands og eyja eftir tíu ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×