Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir, Pálmi Freyr Randversson og Guðjón Skúlason skrifa 12. október 2026 13:09 Svo hröðum vexti fylgja miklar áskoranir, ekki síst fyrir sveitarfélögin sem þurfa að halda í við eftirspurn eftir húsnæði. Um leið opnast fjölmörg tækifæri til fjölbreyttari atvinnuuppbyggingar í kringum alþjóðaflugvöllinn og til að styrkja stöðu Íslands í alþjóðlegum viðskiptum. Miðvikudaginn 14. október fer fram ráðstefnan „Suðurnesin sem drifkraftur vaxtar“ í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Markmið hennar er meðal annars að ræða hvernig Suðurnesin geta knúið áfram vöxt fyrir Ísland allt. Sérfræðingar úr ýmsum áttum fjalla um tækifærin sem leynast á svæðinu, meðal annars markvissa uppbyggingu, áhrif aukinnar erlendrar fjárfestingar á verðmætasköpun og samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegu samhengi. Suðurnesin sem fyrirmynd Það hefur margsannað sig að þrautseigja og kraftur einkenna bæði fólk og fyrirtæki á Suðurnesjum og metnaðurinn fyrir framtíðinni hefur staðið af sér alls konar áskoranir síðustu ár. Við sem vinnum að því að hlúa að og styrkja enn frekar samfélagið og atvinnulífið á Suðurnesjum vitum að ef rétt er að hlutunum staðið getur svæðið enn frekar orðið drifkraftur vaxtar á Íslandi öllu. Hér er nú þegar að finna margar þeirra vaxtargreina sem ný atvinnustefna stjórnvalda setur á oddinn, svo sem gagnaver, landeldi, jarðvarma, iðngarða og ferðaþjónustu. Það er ótal margt sem gerir Suðurnesin einstök, ekki aðeins í samanburði við önnur svæði á Íslandi heldur á heimsmælikvarða. Má þar nefna Svartsengisvirkjun, þar sem þróuð var aðferð til að hita ferskvatn með jarðhitagufu og brautryðjendastarf var unnið í því að vinna saman raf- og varmaorku. Eins má líta til herstöðvarinnar sem mótaði atvinnulíf á svæðinu í um hálfa öld og Keflavíkurflugvallar sem er langmikilvægasta tenging landsins við umheiminn og mikilvæg undirstaða efnahags- og atvinnulífs á svæðinu. Að lokum má ekki gleyma einstakri náttúru Reykjanesskagans, sem fékk árið 2015 viðurkenningu sem UNESCO Global Geopark árið 2015. Fjölbreytt atvinnulíf sem stendur af sér sveiflur Það er okkar hlutverk að styrkja Suðurnesin sem aðlaðandi stað til að búa á, starfa og reka fyrirtæki. Við þurfum fjölbreyttara atvinnulíf sem stendur af sér sveiflur og byggir á styrkleikum svæðisins: grænni orku, nálægð við alþjóðaflugvöll og öflugum mannauði. Mikil tækifæri felast í því að efla flugvallartengda starfsemi en ekki síður í því að hlúa að og byggja upp allt það góða sem fyrir er. Við höfum bæði metnað og trú á því að Suðurnesin geti verið leiðandi afl í að byggja upp alþjóðlega samkeppnishæfni Íslands á heimsvísu en til þess þarf áframhaldandi seiglu og gott samstarf. Kadeco, sem leiðir samstarf um skipulag, þróun, hagnýtingu og markaðssetningu lands við Keflavíkurflugvöll, Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hafa því tekið höndum saman. Við undirrituð trúum því að öflug Suðurnes séu, og geti í enn ríkara mæli orðið, lykillinn að samkeppnishæfni Íslands á alþjóðavettvangi og hlökkum til að ræða þessi málefni betur með öðrum sem hafa metnað og trú á svæðinu. Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri KadecoBerglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á SuðurnesjumGuðjón Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnurekenda á Suðurnesjum Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Skoppandi skrítlandi gervigreindartraust Kristján Logason skrifar Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson skrifar Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Álagsstýring: Burðarþol er meira en tala Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Heita stríðið Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar
Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar