Fótbolti

Í beinni: Glódís og Þor­steinn sitja fyrir svörum

Aron Guðmundsson skrifar
Glódís og Þorsteinn munu svara spurningum blaðamanna  í dag.
Glódís og Þorsteinn munu svara spurningum blaðamanna  í dag.

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tekur á móti Króatíu í seinni leik liðanna í undanúrslitum umspils fyrir HM 2027 annað kvöld. Landsliðsþjálfarinn og fyrirliði liðsins sitja fyrir svörum á blaðamannafundi á Laugardalsvelli í dag. 

Blaðamannafundurinn hefst klukkan 12.15 og þar verða Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari og Glódís Perla Viggósdóttir landsliðsfyrirliði. 

Íslenska landsliðið er í kjörstöðu til þess að tryggja sér sæti í úrslitaeinvígi um sæti á HM 2027 sem fer fram í Brasilíu á næsta ári eftir 4-0 sigur gegn Króatíu ytra í fyrri leik liðanna fyrir helgi. 

Vísir verður á Laugardalsvelli og streymir blaðamannafundinum í beinni útsendingu sem má nálgast í spilaranum hér fyrir neðan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×