Erlent

Verð­launaðir fyrir að tengja rekstrar- og þjóð­hag­fræði

Kjartan Kjartansson skrifar
Hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans eru veitt vikuna á eftir sjálfum Nóbelsverðlaununum.
Hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans eru veitt vikuna á eftir sjálfum Nóbelsverðlaununum.

Tveir bandarískir hagfræðingar hlutu hagfræðiverðlaun Seðlabanka Svíþjóðar fyrir að framlag þeirra til endurnýjunar á stöðugleikaaðgerðum. Þeir lögðu rekstrarhagfræði til grundvallar þjóðarhagfræðilegra líkana sem eru sögð hafa hjálpað til við peninga- og fjármálastefnu og dregið úr sveiflum.

Robert E. Hall frá Stanford-háskóla og Michael Woodford frá Columbia-háskóla hljóta hagfræðiverðlaunin sem eru til minningar um Alfreð Nóbel í morgun. Ólíkt sjálfum Nóbelsverðlaununum sem sænska vísindaakademían útdeilir er það sænski seðlabankinn sem velur verðlaunahafanna í hagfræði.

Nýjungin sem þeir Hall og Woodford eru sagðir hafa bryddað upp á var að byggja hagfræðilíkön sín ekki aðeins á tölfræðilegri fylni á milli þjóðhagslegra þátta eins og verðbólgu, framleiðni og neyslu heldur á áhrifum heimila og fyrirtækja á hagkerfið.

„Frá því að nýju líkönin komu til sögunnar hafa þau reynst afar gagnleg í að glíma við efnahagslegar niðursveiflur sem við höfum lent í,“ segir í rökstuðningi sænska seðlabankans.

Gömlu hagstjórnartækin sem byggðust á kenningum John Maynard Keynes, enska hagfræðingsins, gengu út á að menn lækkuðu stýrivexti og ykju ríkisútgjöld í kreppum en það gagnstæða þegar hagkerfið ofhitnaði.

Þær aðferðir hafi hins vegar litlum árangri skilað í olíukreppunum á áttunda ártug síðustu aldar. Í stað þess að draga úr atvinnuleysi leiddu þær til óðaverðbólgu. Árin einkenndust af viðvarandi atvinnuleysi, verðbólgu og litlum hagvexti á vesturlöndum.

„Rannsóknir verðlaunahafanna veittu okkur stöðugan fræðilegan grunn fyrir þau líkön sem seðlabankar og ríkisstjórnir um allan heim nota núna. Við erum betur í stakk búin að takast á við efnahagsáföll með þeim, þar á meðal orkukreppur eða skyndilegar breytingar í neyslu heimila,“ segir John Hassler, formaður hagfræðiverðlaunanefndarinnar.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×