Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar 12. október 2026 11:02 Þann 30. janúar 2026 dæmdi kviðdómur í Westchester-sýslu í New York Fox Varian, 22 ára konu, tvær milljónir Bandaríkjadala í bætur. Brjóst hennar höfðu verið fjarlægð árið 2019, þegar hún var sextán ára og hafði skilgreint sig sem dreng. Kviðdómurinn taldi að sálfræðingurinn Kenneth Einhorn og lýtalæknirinn Simon Chin hefðu vikið frá viðurkenndum faglegum kröfum í aðdraganda aðgerðarinnar. Móðir hennar bar fyrir dómi að hún hefði verið mótfallin aðgerðinni en samþykkt hana af ótta um líf dóttur sinnar. Málið er talið hið fyrsta í Bandaríkjunum þar sem einstaklingur sem hætti kynleiðréttingu vinnur skaðabótamál af þessu tagi fyrir kviðdómi.Barni sem segist vera fætt í röngum líkama líður illa. Spurningin er hvers vegna? Þegar heilbrigt barn hafnar eigin líkama hlýtur læknir að kanna vandlega hvað liggur að baki áður en rætt er um að breyta líkamanum. Vanlíðanin kemur oft á undan Finnar opnuðu kynvitundarþjónustu fyrir unglinga árið 2011. Yfirlit yfir fyrstu tvö starfsárin sýndi að alvarlegur geðrænn vandi hafði oft komið fram áður en kynami varð áberandi og einkenni einhverfurófs voru algeng. Riittakerttu Kaltiala, geðlæknir við háskólasjúkrahúsið í Tampere, hefur síðar bent á að stór hluti barna sem vísað er í slíka þjónustu uppfylli jafnframt skilmerki geðröskunar. Þunglyndi, kvíði og einhverfa eru þar áberandi. Cass-skýrslan breska frá 2024 dró upp svipaða mynd eftir fjögurra ára yfirferð. Þar kom fram að geðrænn vandi, erfið reynsla í æsku og taugaþroskafrávik væru algengari meðal þessara barna en jafnaldranna. Skýrslan taldi jafnframt að fjölgun tilvísana yrði að skoða í samhengi við versnandi geðheilsu unglinga, einkum stúlkna. Rannsakendur við barnaspítalann í Westmead í Sydney báru börn með kynama saman við börn sem glímdu við annan geðrænan vanda. Þeir fundu sambærilegt mynstur hvað varðaði tengsl og óunnin áföll. Slíkar niðurstöður sanna ekki eina orsök kynama, en þær ættu að nægja til að læknar leiti víðar en að kynvitundinni einni. Unglingsstúlka með ógreinda einhverfu, kvíða eða þunglyndi getur leitað skýringar á því hvers vegna henni líður illa í eigin skinni. Mestu máli skiptir hvaða skýringar við fullorðna fólkið bjóðum henni. Heimilið skiptir öllu máli Börn mótast í fjölskyldum. Þess vegna hefur barnageðlæknisfræði alltaf tekið mið af líðan foreldra, tengslum innan heimilisins og reynslu barnsins. Áströlsku rannsakendurnir lýstu meðal annars fjölskylduátökum, rofinni samheldni og áföllum í æsku. Vanræksla og ofbeldi tengdust jafnframt ótryggara tengslamynstri. Marantz og Coates báru árið 1991 saman mæður drengja með kynáttunarvanda og mæður annarra drengja. Rannsóknin var lítil og því ber að túlka hana varlega, en geðrænn vandi var mun algengari í fyrri hópnum. Kenneth Zucker og Susan Bradley í Toronto lýstu síðar því hvernig líðan foreldra og viðbrögð þeirra við hegðun barns gætu haft áhrif á þróun vandans. Foreldrar þurfa því stuðning engu síður en barnið. Sá sem sjálfur er yfirbugaður af kvíða eða ótta á erfiðara með að veita barni ró og svigrúm til að þroskast. Félagsleg umskipti eru ákvörðun Þegar ungt barn fær nýtt nafn og er ávarpað sem hitt kynið er talað um „félagsleg umskipti“. Cass-skýrslan varaði við því að líta á þetta sem hlutlausa aðgerð og taldi mögulegt að þau hefðu áhrif á þróun kynvitundar barnsins. Hollensk eftirfylgdarrannsókn frá 2013 sýndi einnig að kynami hélst oftar fram á unglingsár meðal barna sem höfðu gengið í gegnum félagsleg umskipti. Slíkar rannsóknir sýna tengsl, þótt þær skeri ekki úr um orsök. Foreldrar standa oft frammi fyrir miklum þrýstingi og óttast að barninu verði hætta búin ef þeir staðfesta ekki nýja kynvitund þess. Cass-skýrslan taldi hins vegar að traust gögn skorti um að félagsleg umskipti ein og sér drægju úr sjálfsvígshættu. Ísland Tilvísunum barna í transteymi BUGL hefur fjölgað. Þær voru 42 árið 2021, 60 árið 2022, 46 árið 2024 og 57 árið 2025. Fram til 24. september 2026 höfðu 37 tilvísanir borist. Miðgildi aldurs við upphaf kynþroskablokka er 16,2 ár og við upphaf krosshormóna 17,1 ár. Samkvæmt opinberum upplýsingum hafa engar kynstaðfestandi skurðaðgerðir verið framkvæmdar á börnum undir 18 ára aldri hér á landi. Nákvæmar árlegar tölur um notkun kynþroskablokka og krosshormóna eru hins vegar afar takmarkaðar. Barn sem hafnar líkama sínum á rétt á vönduðu mati á allri líðan sinni, þar á meðal kvíða, þunglyndi og taugaþroska. Fjölskyldan þarf sömuleiðis stuðning. Finnar færðu sálræna meðferð framar í meðferðarröðina árið 2020, Svíar fylgdu árið 2022 og Bretar hafa breytt sinni þjónustu í kjölfar Cass-skýrslunnar. Barn þarf fyrst og fremst tíma, öryggi og stuðning frá fullorðnu fólki sem þolir óvissu. Ákvörðun sem getur mótað ævi þess má aldrei byggjast á þeirri forsendu að unglingurinn hafi þegar sjálfur öll svörin. Höfundur er læknir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Valsson Mest lesið Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Skoppandi skrítlandi gervigreindartraust Kristján Logason skrifar Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson skrifar Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Álagsstýring: Burðarþol er meira en tala Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Dauði risaeðlunnar og þolmörk jarðar Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Heita stríðið Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar
Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar