Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Áróra L Davíðsdóttir skrifar 11. október 2026 23:45 Steve Schultz, Sirisha Bandla og Marc Hagle eru hluti af áhöfn Marin Mainiku sem er nú á leið til Nikumaroro-eyju. Samsett/Purdue Research Foundation Hópur vísindamanna er nú á leið til Nikumaroro-eyju á Kyrrahafi í þeirri von um að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart. Earhart hvarf sporlaust þegar hún gerði tilraun til þess að verða fyrst allra að fljúga umhverfis jörðina árið 1937.
Hópurinn heldur í leiðangurinn á vegum Purdue-háskóla í Indiana í Bandaríkjunum og ALI (Archaeological Legacy Institute). Gert er ráð fyrir að áhöfnin lendi við Nikumaroro-eyju, hluta af eyríkinu Kíribatí, á morgun. Markmið hópsins er að finna svokallað Taraia-fyrirbæri sem er talið að gæti verið flak úr flugvél Earhart. Fyrirbærið sást fyrst á gervihnattamyndum árið 2020 við samnefnt Taraia-lón á eyjunni. Gervihnattamynd sýnir Taraia-fyrirbærið í lóni á Nikumaroro-eyju. ALI/Rick Pettigrew Samkvæmt áhöfninni hefur hluturinn sést á loftmyndum af svæðinu allt aftur til ársins 1938, ári eftir hvarf Earhart og flugleiðsögumanns hennar Fred Noonan. Eyjan fer með stórt hlutverk í kenningum um hvarf Earhart Hópurinn lagði af stað frá höfuðborg Kíribatí á miðvikudaginn og ferðast nú 1.340 kílómetra til eyjunnar. Hún er meðal afskekktustu staða á jörðinni og er 370 kílómetrum frá næsta byggða bóli. Eyjan hefur lengi verið þungamiðja kenninga um hvarf Earhart, segir á vef verkefnisins. „Óhjákvæmilega fylgja þessu sterkar tilfinningar. Ég er innilega og ævinlega þakklátur þeim fjölmörgu einstaklingum og samtökum sem hafa hjálpað til við að gera draumsýn okkar að veruleika. Mér finnst ég sannarlega heppinn að vera í aðstöðu til að mögulega leysa eina af mestu ráðgátum allra tíma, hvort sem það tekst eða ekki,“ er haft eftir Richard Pettigrew, forstöðumanni ALI og leiðangursstjóra verkefnisins. Gæti sannað kenningu fræðimanna um hvarfið Amelia lagði af stað í sína hinstu flugferð frá Kaliforníu á tveggja hreyfla Electra-flugvél árið 1936. Hún hafði þegar flogið yfir Suður-Ameríku, Afríku og Asíu þegar hún kom til Papúa Nýju-Gíneu 2. júlí 1937, segir í umfjöllun BBC. Þaðan ætluðu hún og Noon að fljúga í átt að Havaí og aftur til Kaliforníu. Flugvélin hvarf hins vegar sporlaust og hefur það reynst hin mesta ráðgáta allar götur síðan. Hvarf Earhart hefur verið fólki hugleikið áratugum saman og á sér ýmsar kenningar. Reynist Taraia-hluturinn vera flak úr flugvél Earhart endanlega sannar það kenningu fræðimanna um að Earhart og Nooan hefðu í raun brotlent nærri eyjunni og að öllum líkindum látist þar, segir í umfjöllun Reuters um leiðangurinn.
Bandaríkin Vísindi Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Sjá meira