Körfubolti

Ó­vænt truflun í Njarð­vík

Valur Páll Eiríksson skrifar
Svejcar greip þá stuttu og hljóp með hana út af.
Svejcar greip þá stuttu og hljóp með hana út af. Skjáskot/Sýn Sport

Spencer Svejcar, nýliði hjá Njarðvík í Bónus-deild karla í körfubolta, hafði í nægu að snúast í fyrsta leik tímabilsins í gærkvöld. Hann þurfti að sinna föðurhlutverkinu á meðan leik stóð, samhliða spilamennskunni.

Svejcar var stigahæstur á vellinum í 77-85 tapi Njarðvíkur fyrir Tindastóli í IceMar-höllinni í gærkvöld þar sem hann skoraði 23 stig auk þess að taka sex fráköst og gefa þrjár stoðsendingar.

Dóttir hans var meðal áhorfenda á leiknum og þegar skammt var eftir hafði hún fengið nóg af því að sitja í stúkunni og óð inn á völlinn til að knúsa föður sinn.

Hann greip hana og skilaði henni hratt og örugglega í stúkuna svo leikur gæti haldið áfram.

Atvikið má sjá í spilaranum.

Klippa: Ung stúlka óð inn á völlinn til að knúsa pabba



Fleiri fréttir

Sjá meira


×