Körfubolti

„Menn eru að reyna að vera með á­byrgan rekstur“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Finnur Freyr fer yfir málin með sínum mönnum.
Finnur Freyr fer yfir málin með sínum mönnum. Vísir/Hulda Margrét

Valsmenn byrjuðu vel í Bónus deild karla í gær og virtist ekki koma að sök að liðið sé að tefla fram ódýrara liði en síðustu ár.

Valur vann sannfærandi sigur á Stjörnunni og er með byr í seglin fyrir komandi verkefni.

Á Hlíðarenda hafa menn verið að draga saman seglin í öllum íþróttagreinum og karfan er þar ekki undanskilin.

„Það er ekki mikið tala um það og ég skil það ekki alveg en menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur,“ sagði Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, eftir leikinn gegn Stjörnunni í gær.

„Ég ber virðingu fyrir því. Það er fullt af fólki að vinna hér allan sólarhringinn til að láta hlutina ganga upp. Það er búið að vera frábært hérna undanfarin ár. Stundum kemur smá bakslag í reksturinn og þá verða menn að bregðast við því.“

Valsmenn misstu sex leikmenn fyrir tímabilið en fengu aðeins þrjá í staðinn. Það opnar dyrnar fyrir aðra leikmenn að stíga upp og óhætt að segja að hinn 16 ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson hafi nýtt það í gær. Hann átti stórleik í sínum fyrsta leik í efstu deild og verður áhugavert að fylgjast með guttanum í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×