Viðskipti innlent

Skims opnar í Kringlunni

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Verslunin opnar innan tveggja vikna.
Verslunin opnar innan tveggja vikna. Vísir/Anton Brink

Skims, undirfatamerki í eigu raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian, opnar tímabundið útibú í Kringlunni. Eigendur Matthilda standa að opnuninni en um er að ræða afar vinsælt vörumerki.

Þessu greinir Kringlan frá með mynd í hringrásinni á Instagram. Á myndinni má sjá plakat þar sem segir að Skims muni opna tímabundið verslun hér í október. Þetta staðfestir Unnur María Pálmadóttir, markaðsstjóri Kringlunnar.

„Það verður opnað á næstu tveimur vikum,“ segir Unnur í samtali við fréttastofu.

Eigendur Matthilda standa að versluninni og hefur vinna við opnunina staðið yfir í dágóðan tíma. Verslunin verður á annarri hæð Kringlunnar þar sem verslun Húrra Reykjavík var áður. 

Unnur segir að ekki sé búið að ákveða nákvæmlega hversu lengi verslunin verður opin en það verði að minnsta kosti til áramóta. Bæði dömu- og herrafatnaður verður til sölu ásamt svokallaðri basic-línu, náttfötum og jogginggöllum.

Merkið var stofnað árið 2019 af Kim Kardashian, raunveruleikastjörnu og athafnakonu, og selur alls konar fatnað en er þekktast fyrir aðhaldsvörurnar og undirfatnað. Það vakti til að mynda athygli þegar nærbuxur voru settar á sölu með gerviskapahárum á. Einnig var sérstök gríma til sölu sem leikarinn Anthony Hopkins líkti við grímu Hannibals Lecter.

Vörurnar hafa hlotið töluverðar vinsældir og hafði þegar skilað 145 milljónum bandaríkjadollara í hagnað árið 2021 sem gera tæplega átján milljarða króna. Vörumerkið var valið eitt af hundrað áhrifamestu vörumerkjum tímaritsins Time árið 2022.

Fyrir tæpu ári var fyrirtækið talið vera fimm milljarða bandaríkjadala virði, sem gera rúmlega sex hundruð milljarða króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×