Fótbolti

Leggur skóna á hilluna

Valur Páll Eiríksson skrifar
Pedro Rodriguez raðaði inn titlum með Barcelona.
Pedro Rodriguez raðaði inn titlum með Barcelona. Nordic Photos / AFP

Pedro Rodríguez, fyrrverandi leikmaður Barcelona, Chelsea, Lazio og spænska landsliðsins, hefur lagt skóna á hilluna 39 ára að aldri.

Pedro hefur verið án liðs síðan samningur hans við Lazio rann út í sumar. Hann tilkynnti á samfélagsmiðlum í dag að leikmannaferli hans sé lokið.

Hann bindur þar með enda á sérlega sigursælan feril þar sem hann vann bæði HM og EM með spænska landsliðinu auk fjölda annarra titla með félagsliðum sínum.

Pedro spratt fram á sjónarsviðið með Barcelona árið 2008, þá 21 árs gamall, eftir að hafa leikið fyrir B- og C-lið félagsins. Barcelona var þá við það að hefja eitt sigursælasta skeið í sögu félagsins undir stjórn Pep Guardiola.

Pedro vann spænsku deildina fimm sinnum milli 2008 og 2015, spænska bikarinn þrisvar, Ofurbikarinn fjórum sinnum, Meistaradeild Evrópu þrisvar, Ofurbikar UEFA þrisvar og HM félagsliða í tvígang á tíma sínum í Katalóníu.

Hann söðlaði um og hélt til Chelsea á Englandi og varð þar enskur meistari á öðru ári sínu í ensku höfuðborginni, vorið 2017. Hann vann einnig enska bikarinn og Evrópudeildina með Chelsea.

Titlunum fækkaði þegar Pedro fór frá Lundúnum til Rómar árið 2020 en eftir eina leiktíð með Roma fór hann til nágrannana og erkifjendanna í Lazio hvar hann lék frá 2021 þar til í sumar.

Pedro lék 65 landsleiki fyrir Spán frá 2010 til 2017 og skoraði í þeim 17 mörk. Hann vann HM með Spáni 2010 og EM árið 2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×