Íslenski boltinn

Unnu stór­sigur og komu Ís­landi í umspil

Andri Broddason skrifar
Mathys Tel skoraði þrennu gegn Sviss fyrir U21 landslið Frakklands.
Mathys Tel skoraði þrennu gegn Sviss fyrir U21 landslið Frakklands. Gaspafotos/MB Media/Getty Images

U21 landslið Frakklands vann stórsigur á U21 landsliði Sviss í leik sem endaði 7-1. Með sigri Frakklands tryggir íslenska liðið sér í umspil til þess að komast á EM og endar liðið í öðru sæti riðilsins.

Fyrir leiki kvöldsins þurftu bæði Ísland og Frakkland að vinna til þess að Ísland myndi fara í umspilið og það heppnaðist. Ísland vann Færeyjar 2-0 og með hjálp Frakklands mun liðið fara í umspil fyrir EM sem haldið er á næsta ári.

Sigur Frakklands var nánast aldrei í hættu þar sem liðið var komið í 2-0 forystu eftir fimmtán mínútur með marki frá Mathys Tel og Neo Lebreton. Tel bætti svo við öðru marki og var staðan 3-0 í hálfleik.

Tel fullkomnaði svo þrennuna snemma í seinni hálfleik og náðu Dehmaine Tabibou, Steve Ngoura og Kevin Danois einnig að skora fyrir Frakkland. Liam Chipperfield náði að klóra í bakkann fyrir Sviss en fleiri urðu mörkin ekki.

Svekkjandi úrslit fyrir Sviss sem við Íslendingar tökum fagnandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×