Skoðun

Mjög góður árangur fyrir­byggjandi ó­næmis­að­gerða gegn RSV hjá ungum börnum

Valtýr Stefánsson Thors skrifar

Haustið er gengið í garð og ýmsar pestir farnar að láta á sér kræla. Öndunarfærasýkingar eru algengar hjá yngstu börnunum og ýmsir faraldrar fastir liðir yfir veturinn og RSV veiran leikur þar jafnan aðalhlutverk. Börn yngri en 6 mánaða eru í mestri hættu að verða alvarlega veik af veirunni og að þurfa innlögn á sjúkrahús og jafnvel gjörgæsludeildir. Undanfarin ár hafa 150-200 börn á fyrsta aldursári leitað á Barnaspítalann og allt að 60 þurft að leggjast inn á sjúkrahús árlega, þó mismunandi mörg á milli ára.

Síðastliðinn vetur hófu sóttvarnaryfirvöld á Íslandi nýja fyrirbyggjandi meðferð gegn RSV og bauðst öllum börnum sem ekki höfðu náð 6 mánaða aldri í byrjun október og öllum börnum sem fæðast eftir það, að fá eina gjöf af einstofna mótefni gegn RSV veirunni sem veitir vörn í u.þ.b. 6 mánuði eða lengur. Langflestir foreldrar á Íslandi tóku þessu fagnandi og um 85-90% þeirra þáðu mótefnin fyrir börn sín. Árangur þessara aðgerða var frábær síðasta vetur. Mikil fækkun varð á staðfestum sýkingum og innlögnum hjá þessum aldurshópi.

Meðal barna yngri en 6 mánaða þurftu einungis tvö börn innlögn á sjúkrahús en útskrifuðust sólarhring síðar. Alls þurftu sex börn á fyrsta aldursári innlögn vegna RSV sýkingar og þrjú þeirra fengu ekki mótefnin.

Þetta eru afar ánægjulegar niðurstöður og benda til að fyrirbyggjandi meðferð hafi mikil áhrif á sjúkdómsbyrði RSV hjá ungum börnum. Með því að koma í veg fyrir RSV sýkingar á fyrstu mánuðum ævinnar má auk þess búast við minni þörf fyrir notkun sýklalyfja og innöndunarlyfja (astmapúst).

Þessi árangur er fagnaðarefni fyrir börn og fjölskyldur þeirra, en hafa þarf þó þann fyrirvara að RSV faraldrar geta verið mjög mismunandi milli ára og ekki tryggt að árangurinn verði jafngóður áfram. Nú í byrjun októbermánaðar er þegar farið að bjóða börnum þessa fyrirbyggjandi meðferð fyrir komandi vetur. Vonandi munu áfram flestir foreldrar á Íslandi nýta sér hana og þannig draga úr líkum á alvarlegum RSV sýkingum hjá yngstu börnunum og að árangurinn verði áfram góður hér á Íslandi, eins og reynslan hefur verið í öðrum löndum.

Áfram verður fylgst náið með árangrinum hér á landi eins og gert er annars staðar. Þær upplýsingar munu skipta miklu máli þegar tekin verður afstaða til fyrirbyggjandi aðgerða gegn RSV á komandi árum.

Höfundur er barnasmitsjúkdómalæknir Barnaspítala Hringsins og dósent við læknadeild HÍ.




Skoðun

Sjá meira


×