Fótbolti

„Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kári Árnason var hundsvekktur með leik íslenska liðsins.
Kári Árnason var hundsvekktur með leik íslenska liðsins.

Það var þungt hljóðið í sérfræðingum Sýnar Sports eftir markalausa jafnteflið gegn Eistum í kvöld. Menn voru ekki hrifnir af frammistöðu íslenska liðsins.

„Þetta var ekki gott og við hefðum tapað þessum leik ef Hákon hefði ekki verið í markinu,“ sagði hundsvekktur Kári Árnason á Sýn Sport.

„Þetta var alls ekki gott og maður veltir fyrir sér núna hvert uppleggið var. Hvar ætluðum við að sækja á þá? Ég veit það ekki,“ bætti Lárus Orri Sigurðsson við.

Kjartan Atli Kjartansson þáttastjórnandi sagði augljóst að menn hefðu verið þreyttir undir lokin.

„Samt er besti kaflinn okkar í blálokin. Þá eigum við tíu mínútur þar sem þeir virka þreyttari. Upp að því voru þeir miklu betri í seinni hálfleik og líklegri,“ sagði Kári og furðaði sig á aðeins tveimur skiptingum þjálfarans í leiknum.

„Mér fannst þessi leikur kalla á Jón Dag og ég hefði viljað sjá Mikael Neville vaða á bakvörðinn er hann fékk tækifæri til þess. Jón Dagur er vanur að gera það og mér fannst skrítið að það væru ekki fleiri skiptingar þegar allir eru gasandi.

„Þetta eru ágætis úrslit en ég ætla ekki að segja að þetta séu frábært þegar liðið er að gera jafntefli og skapar sér ekki færi gegn liði sem er í 125. sæti heimslistans.“

Klippa: Svekktir sérfræðingar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×