Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Birgir Olgeirsson skrifar 6. október 2026 16:42 Sigríður Andersen telur innleiðingu bókunar 35 engu hafa breytt í fæðingarorlofsmálinu og mótmælir fullyrðingu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um annað. Vísir/Viktor Freyr/Einar Dómsmál um fæðingarorlof og skaðlegt sælgæti hafa verið notuð með villandi hætti til að rökstyðja innleiðingu bókunar 35, að mati Sigríðar Andersen, þingflokksformanns Miðflokksins. Hún sakaði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um hálfsannleik og blekkingar í umræðum á Alþingi í dag.
Þorgerður hafnaði gagnrýninni og sagði frumvarpið eiga að tryggja réttindi einstaklinga og fyrirtækja sem íslensk lög tryggðu þeim ekki með fullnægjandi hætti. Ráðherrann mælti fyrir frumvarpi um bókun 35. Samkvæmt því eiga lagaákvæði sem réttilega innleiða EES-reglur að ganga framar öðrum íslenskum lögum þegar þau stangast á, nema Alþingi mæli sérstaklega fyrir um annað. Sigríður taldi dómsmálin tvö ekki styðja málflutning ráðherrans. Fæðingarorlofsmálið hefði að hennar mati komið upp þótt bókunin hefði verið innleidd. Í sælgætismálinu hefði stúlkan þegar átt rétt á bótum, en EES-reglurnar hefðu hins vegar takmarkað ábyrgð sjoppunnar sem seldi sælgætið. Sagði stúlkuna hafa átt kröfu á bæði fyrirtækin Sælgætismálið snerist um stúlku sem varð fyrir heilsutjóni af sælgæti sem hún keypti í söluturni. Sigríður sagði Þorgerði hafa látið að því liggja að stúlkan hefði aðeins getað sótt bætur til sjoppunnar vegna þess að bókun 35 hefði ekki verið innleidd. Því mótmælti hún. Stúlkan hefði höfðað mál gegn bæði Biðskýlinu í Njarðvík, sem seldi sælgætið, og innflytjandanum, Sjö tveimur ehf. Að sögn Sigríðar hefðu bæði fyrirtækin verið dæmd bótaskyld og borið sameiginlega ábyrgð á bótunum. Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, sakaði utanríkisráðherra um hálfsannleik og blekkingar í umræðum um bókun 35.Vísir/Anton Brink Innflytjandinn telst framleiðandi í skilningi laga um skaðsemisábyrgð. Þegar rætt er um ábyrgð framleiðandans í þessu máli er því einnig átt við fyrirtækið sem flutti sælgætið til landsins. „Stúlkan hefði alltaf fengið bætur,“ sagði Þorgerður í fyrri orðaskiptum þeirra og nefndi framleiðandann í framhaldinu. Hún lagði jafnframt áherslu á að frumvarpið snerist um réttindi bæði einstaklinga og fyrirtækja. EES-reglurnar hefðu takmarkað ábyrgð sjoppunnar Í framhaldsræðu sinni útskýrði Sigríður nánar hvers vegna hún teldi dæmið villandi. Íslensku lögin hefðu tryggt stúlkunni rétt til að krefja bæði sjoppuna og innflytjandann um bætur. Reglur Evrópusambandsins hefðu hins vegar lagt þrengri skilyrði á bótaábyrgð sjoppunnar. Sigríður sagði íslensku lögunum hafa verið breytt árið 2014 til samræmis við þær reglur. Kæmi sama mál upp nú hefði stúlkan að hennar mati þurft að láta sér nægja bótakröfu gegn framleiðandanum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafnaði gagnrýni Sigríðar og sagði frumvarpið um bókun 35 eiga að tryggja réttindi einstaklinga og fyrirtækja.Vísir/Vilhelm Gagnrýni hennar snerist þannig um hver bæri ábyrgð á tjóninu. Hún sagði stúlkuna hafa átt bótarétt samkvæmt íslensku lögunum en EES-reglurnar hefðu getað leyst sjoppuna undan ábyrgð. Í þessu dæmi hefðu þær því verndað fyrirtækið fyrir bótakröfu stúlkunnar. „Evrópusambandsreglurnar vernda nefnilega stundum réttindi fyrirtækja, stundum sérstaklega réttindi einstaklinga, stundum fer þetta saman en stundum vegast á réttindi einstaklinga og fyrirtækja.“ Þess vegna taldi Sigríður rangt að nota málið sem dæmi um að stúlkan hefði farið á mis við réttindi vegna þess að bókun 35 hefði ekki verið innleidd. Deildu um hvort fæðingarorlofsmálið hefði komið upp Í fæðingarorlofsmálinu höfðu konu sem starfað hafði erlendis verið ákvarðaðar lágmarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Samkvæmt greinargerð frumvarpsins taldi Hæstiréttur ekki hægt að víkja frá skýru orðalagi íslenskra laga, þótt ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins hefði mælt fyrir um aðra niðurstöðu. Sigríður spurði Þorgerði hvort niðurstaðan hefði orðið önnur ef frumvarpið um bókun 35 hefði verið orðið að lögum. „Fæðingarorlofsmálið hefði náttúrulega aldrei komið til ef Alþingi Íslendinga hefði staðið sig í stykkinu og innleitt bókun 35. Þá hefði það ekki komið til,“ svaraði Þorgerður. Þorgerður Katrín segir innleiðingu bókunar 35 tryggja réttindi einstaklinga og fyrirtækja. Sigríður Andersen telur bókunina engu hafa breytt í fæðingarorlofsmálinu og segir EES-reglurnar í sælgætismálinu hafa verndað sjoppuna fyrir bótaábyrgð, en ekki bætt rétt stúlkunnar.Vísir/Vilhelm Ráðherrann sagði ástæðuna vera að Alþingi hefði ekki lögfest reglu sem tryggði að innleiddar EES-reglur gengju framar öðrum lögum þegar þær stönguðust á. Það væri vandinn sem frumvarpið ætti að leysa. Sigríður sagði hins vegar að í fæðingarorlofsmálinu hefði sjálf reglugerðin um samræmingu almannatryggingakerfa ekki verið réttilega innleidd. Frumvarpið veitti aðeins réttilega innleiddum reglum forgang og lagaði því ekki þann annmarka. „Bókun 35 hefði engu máli skipt í fæðingarorlofsmálinu þótt við værum búin að innleiða hana.“ Að mati Sigríðar hefði konan því þurft að höfða mál óháð innleiðingu bókunarinnar. Hún sagði jafnframt ágreining hafa verið um hvernig túlka ætti almannatryggingareglurnar og þess vegna hefði þurft að leita álits EFTA-dómstólsins. Telur hægt að reikna greiðslurnar með öðrum hætti Í síðari orðaskiptum benti Þorgerður á að fæðingarorlofslögunum hefði þegar verið breytt og framkvæmdin væri nú í samræmi við EES-samninginn. Sigríður tók undir að lögunum hefði verið breytt á síðasta ári. Hún taldi hins vegar EES-reglurnar gefa Alþingi meira svigrúm til útfærslunnar en málflutningur ráðherrans gæfi til kynna. Að sögn Sigríðar væri nú reiknað með íslenskum launum eins og viðkomandi hefði starfað hér í tólf mánuði, þótt hann hefði aðeins unnið hér í stuttan tíma fyrir fæðingu barns. Hún taldi einnig heimilt að miða við launin sem viðkomandi hafði í landinu þar sem hann starfaði áður. Sigríður sagði þetta skipta máli þegar fólk flytti hingað frá löndum þar sem laun væru lægri. Það væri verkefni Alþingis að ákveða hvernig greiðslurnar væru reiknaðar. Ósammála um forsendur EES-samningsins Sigríður sagði stærsta ágreiningsefnið vera hvort heimilt væri að veita innleiddum EES-reglum forgang án þess að breyta stjórnarskránni. Hún taldi slíka reglu fela í sér framsal valds sem samrýmdist ekki óbreyttri stjórnarskrá. Hún sagði það hafa verið meðvitaða ákvörðun þegar EES-samningurinn var samþykktur að veita þessum reglum ekki almennan forgang. Þess í stað hefði verið lögfest regla um að túlka íslensk lög til samræmis við EES-samninginn. Þorgerður hafnaði þessari lýsingu. Hún spurði hvað styddi þá fullyrðingu að Alþingi hefði samþykkt EES-samninginn með þeirri forsendu að standa ekki við hann. Ráðherrann vísaði til Björns Bjarnasonar, sem hefði sagt skilninginn á sínum tíma hafa verið að bókun 35 væri réttilega innleidd. Hefðu menn áttað sig á að svo væri ekki hefðu þeir farið aðra leið. Þorgerður vísaði einnig til umsagnar Lilju Ólafsdóttur um samningagerðina. Samkvæmt lýsingu ráðherrans hefði niðurstaða viðræðnanna verið að EFTA-ríkin skyldu lögfesta forgang innleiddra EES-reglna þegar þær stönguðust á við önnur landslög. Sigríður hélt því fram að Alþingi hefði á sínum tíma samþykkt túlkunarreglu og þar með hafnað almennri forgangsreglu. Sigurður Örn taldi áhrif frumvarpsins takmörkuð Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði stjórnarliða gera of mikið úr áhrifum frumvarpsins. Mikilvægasta verkefnið væri eftir sem áður að færa efnisreglur EES-samningsins rétt inn í íslensk lög. Hann sagði bókunina fjalla um takmörkuð tilvik þar sem tvær íslenskar lagareglur stönguðust á. Hún leysti því ekki allan vanda við að samræma íslenska löggjöf og EES-reglur. Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hvers vegna frumvarpið hefði ekki verið afgreitt í vor þrátt fyrir viðvörun ESA um málshöfðun.Vísir Sigurður Örn spurði jafnframt hvers vegna frumvarpið hefði ekki verið afgreitt í vor. Hann vísaði til viðtals Ríkisútvarpsins við Árna Pál Árnason, stjórnarmann ESA, 30. september. Að sögn Sigurðar Arnar hafði Árni Páll sagt fulltrúum allra flokka að ESA myndi höfða mál ef frumvarpið yrði ekki afgreitt á vorþingi. Þorgerður vísaði til þinglokasamninga og sagði flokka í stjórnarandstöðu hafa lagst gegn afgreiðslu málsins. Það hefði verið afgreitt úr utanríkismálanefnd en ekki náð í gegnum þingið. ESA tilkynnti 30. september að stofnunin hefði höfðað mál gegn Íslandi vegna þess að hún teldi bókun 35 ekki innleidda með fullnægjandi hætti.
Bókun 35 Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur EES-samningurinn Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Sjá meira