Innlent

Sam­talið efnismeira en áður þó tals­verð gjá sé á milli

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Halla Gunnarsdóttir segir að samtalið sé orðið efnismeira. Enn sé þó talsverð gjá á milli aðila og tíminn á þrotum.
Halla Gunnarsdóttir segir að samtalið sé orðið efnismeira. Enn sé þó talsverð gjá á milli aðila og tíminn á þrotum. vísir/anton

Talsmenn Samtaka atvinnulífsins og VR funduðu um forsendur kjarasamninga í morgun. Formaður VR segir samtalið efnismeira en áður þó að enn sé talsverð gjá á milli og hætta á að samningar falli. Ögurstund er í kjaramálum.

Í gærkvöld fengu VR og Fagfélögin heimild frá sínum trúnaðarmönnum og samninganefndum til að segja upp kjarasamningum. Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að talsverður hiti hafi verið í fólki á fundinum í gær.

„Þau voru ósátt við þær launalækkanir sem stór hluti VR-félaga hefur gengið í gegnum en líka við ákvarðanir í ríkisfjármálum og auðvitað peningastefnu sem hefur þrengt alveg gríðarlega að launafólki á gildistíma þessara kjarasamninga.“

Frestur til uppsagnar rennur út síðdegis á fimmtudaginn en í morgun fundaði félagið með Samtökum atvinnulífsins.

„Mér til mikillar gleði þá erum við núna komin í aðeins efnismeira samtal heldur en ég tel að við höfum verið í, þannig það var svona ákveðið samtal sem átti sér stað í morgun og ég hef væntingar um að haldi áfram í dag. Það er mjög skammur tími til stefnu og ljóst að við þurfum að hafa dálítið hraðar hendur en að vera líka ákveðin og lausnamiðuð í þessu. Í grunninn skynja ég ekki mikinn vilja til þess að segja upp samningum en á hinn bóginn er mitt fólk heldur ekki tilbúið til þess að fara inn í hálft annað ár af sama ástandi.“

Geri veturinn mjög erfiðan

Aðspurð að hvaða leyti samtalið hafi verið efnismeira segir Halla að ýmsar lausnir hafi verið settar á borðið og aðilar nálgist hvorn annan af virðingu. Samtalið muni halda áfram í dag og eftir atvikum á morgun.

„Og ég held að það skipti máli að fólk beri virðingu fyrir þeim ólíku hagsmunum og því ólíka baklandi sem aðilar hafa. Þannig að við erum allavega svona komin af stað í samtal en það er talsverð gjá á milli og ennþá alveg talsverð hætta á að samningar falli, en líka rosaleg meðvitund um hvað það myndi þýða því að það myndi gera þennan vetur mjög erfiðan.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×