Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Atli Ísleifsson skrifar 2. október 2026 08:08 Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás. Styrkás Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Seljandi er félag í eigu Vilhjálms Þórs Matthíassonar. Heildarvirði Malbikstöðvarinnar í viðskiptunum er 5.080 milljónir króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Styrkás. Viðskiptin séu háð hefðbundnum fyrirvörum, meðal annars um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Með kaupunum verði til fimmta kjarnasvið Styrkás og verði Vilhjálmur Þór einn af stærri hluthöfum í Styrkás. „Malbikstöðin á rætur að rekja til ársins 2004 og sérhæfir sig í framleiðslu og útlögn malbiks fyrir vegi, göngustíga og bílastæði. Félagið rekur malbikstöð á Esjumelum og býr yfir öflugum tækjakosti, sérhæfðu starfsfólki og traustum viðskiptasamböndum. Sterkt félag með mikla vaxtarmöguleika Malbikstöðin verður rekin sem sjálfstætt félag innan samstæðu Styrkás í kjölfar viðskiptanna. Með viðskiptunum bætist við sérþekking og framkvæmdageta sem styrkja þjónustu samstæðunnar við sveitarfélög, verktaka og aðra viðskiptavini í uppbyggingu og viðhaldi samgönguinnviða. Vilhjálmur stofnaði Malbikstöðina og hefur á 22 árum byggt hana upp í að veita framúrskarandi þjónustu sem sinnir allri virðiskeðjunni, frá framleiðslu til útlagnar. Um 55 starfsmenn félagsins þjóna viðskiptavinum en í hópi þeirra eru stærstu sveitarfélög landsins, verktakar og önnur fyrirtæki. Athafnasvæði félagsins á Esjumelum skapar tækifæri til að sameina starfsemi Malbikstöðvarinnar á einn stað og veitir gott svigrúm fyrir framtíðaruppbyggingu Styrkás samstæðunnar á svæðinu. Stöðin á Esjumelum á mikið inni og getur félagið aukið framleiðslu umtalsvert með núverandi innviðum. Rekstrartekjur Malbikstöðvarinnar námu 2,8 milljörðum króna árið 2025. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 779 milljónum króna, eða 27% af tekjum, og rekstrarhagnaður (EBIT), án söluhagnaðar eigna, nam 499 milljónum króna. Heildareignir um síðustu áramót voru bókfærðar á 3,4 milljarða króna og eiginfjárhlutfall var 78%. Tilgangur viðskiptanna er að efla þjónustu Styrkás við uppbyggingu innviða og þjónusta núverandi viðskiptavini enn betur með auknu vöruframboði. Vegakerfi Íslands er um 26.000 kílómetrar en þar af eru einungis 8.400 kílómetrar af bundnu slitlagi. Aukinn umferðarþungi kallar á vaxandi þörf fyrir malbikun vega. Samtök iðnaðarins hafa áætlað að viðhaldsþörf í vegakerfinu nemi á bilinu 265-290 milljarðar króna og samgönguáætlun gerir ráð fyrir um 600 milljarða króna fjárfestingu í vegakerfinu til næstu 15 ára. Heildareignir Styrkás eftir viðskiptin nema um 54 milljörðum króna, eigið fé um 26 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er áætlað að verði 48% eftir viðskiptin,“ segir í tilkynningunni. Rúmir fimm milljarðar Fram kemur að heildarvirði Malbikstöðvarinnar í viðskiptunum (e. Enterprise Value) sé 5.080 milljónir en þar af séu um 80 milljónir króna árangurstengdar og komi til greiðslu ef viðmið um rekstrarhagnað næstu þriggja ára náist. „Til viðbótar er kaupverð 28 þúsund fermetra lóðar að Gullsléttu 900 m.kr. með inniföldum gatnagerðargjöldum. Heildarvirði Malbikstöðvarinnar og lóða er því samtals 5.980 m.kr. Kaupverð verður greitt með útgáfu 138,7 milljón nýrra hluta í Styrkás hf. á genginu 26,68 kr. á hlut, handbæru fé og yfirtöku skulda. Útgáfa hinna nýju hluta er með fyrirvara um samþykki hluthafafundar fyrir hlutafjáraukningunni. Eftir viðskiptin mun seljandi eignast 10,2% hlutafjár í Styrkás.“ Sterkur rekstur Haft er eftir Ásmundi Tryggvasyni, forstjóra Styrkáss, að kaupin á Malbikstöðinni séu í samræmi við stefnu Styrkás um að byggja upp þjónustufélag við uppbyggingu innviða. „Í Malbikstöðinni fara saman sterkur rekstur, frábært starfsfólk og mikil tækifæri til vaxtar. Ísland stendur frammi fyrir stórri áskorun við uppbyggingu innviða sem sterkur samhljómur er um að tímabært sé að ráðast í. Með viðskiptunum verður til nýtt kjarnasvið sem styrkir getu Styrkás samstæðunnar til að taka þátt í því verkefni. Við fögnum því að fá Malbikstöðina og starfsfólk þess í hópinn.“ Vilji tryggja Malbiksstöðinni og starfsfólki góða framtíð Í tilkynningunni er jafnframt haft eftir Vilhjálmi Þór Matthíassyni, stofnanda og eiganda Malbikstöðvarinnar, að hann selji ekki af því að hann vilji hætta, heldur af því að hann vilji tryggja Malbikstöðinni og starfsfólki hennar góða framtíð meðan hann hef sjálfur fulla starfsorku. „Ég hef séð of mörg góð fyrirtæki lenda í vanda þegar kemur að kynslóðaskiptum og ég vil að Malbikstöðin sé vel undirbúin fyrir næsta kafla í sinni sögu. Styrkás er rétti staðurinn fyrir félagið vegna þess að Styrkás hefur skýra sýn á framtíðartækifæri Malbikstöðvarinnar. Ég hef mikla trú á Styrkás og þess vegna sóttist ég eftir að fá stærstan hluta kaupverðsins í hlutabréfum. Með traustan bakhjarl getum við nýtt þau tækifæri sem felast í starfsemi Malbikstöðvarinnar.“ Ráðgjafar kaupanda í viðskiptunum eru Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans, BBA // Fjeldco, Fontes Ráðgjöf og KPMG. Ráðgjafar seljanda í viðskiptunum eru Mörkin lögmannsstofa. Um Styrkás hf. Styrkás hf. er rekstrarfélag, stofnað árið 2022. Dótturfélög Styrkás eru Skeljungur, Klettur, Stólpi og Hreinsitækni, sem saman mynda samstæðu félagsins. Styrkás er leiðandi þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði með styrk til að þjónusta innviða- og atvinnuvegafjárfestingu á Íslandi. Styrkás hefur hafið undirbúning að skráningu hlutabréfa félagsins á aðallista Nasdaq Iceland, með það að markmiði að félagið verði skráð á öðrum ársfjórðungi 2027.
Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia Sjá meira