KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar 25. september 2026 15:32 Það er landsleikur gegn Eistlandi á morgun. Og við skulum ekkert vera að fegra stöðuna. Miðasalan er dræm. Spennan í kringum leikinn er lítil. Það hefur vantað neista. Og við í Tólfunni höfum heldur ekki verið að standa okkur nægilega vel. Það er auðvelt að mæta þegar allt er í blússandi gír, spennan áþreifanleg og sérstaklega þegar stórmót eru á næsta leyti. Þegar miðarnir seljast upp á korteri. Þegar þjóðin talar um ekkert annað. Þegar allir vilja vera með. Þegar stemningin verður til áður en við göngum inn á völlinn. En þá þarf í raun ekkert að spyrja: Kemur Tólfan? Auðvitað kemur hún þá. Spurningin skiptir máli á dögum og kvöldum eins og þessum. Þegar enginn ætlar að búa stemninguna til fyrir okkur. Þegar við þurfum að gera það sjálf. Tólfan varð ekki til vegna þess að íslenska landsliðið þurfti stuðningsmenn þegar vel gekk. Hún varð til vegna þess að íslenska landsliðið á að eiga stuðningsmenn. Punktur. Hún var stofnuð í skugga ömurlegs taps árið 2007 af frábæru fólki! Fólki sem mætir. Fólki sem syngur. Fólki sem stendur saman. Fólki sem ákveður að gera venjulegan landsleik að einhverju meira. Við höfum öll upplifað kvöldin þar sem Laugardalsvöllur hefur nötrað. Þar sem stemningin er á heimsmælikvarða. Við vitum hvernig þetta getur verið. En svona kvöld verða ekki til af sjálfu sér. Einhver þarf að byrja. Á morgun er tækifæri fyrir okkur í Tólfunni að líta aðeins í eigin barm og muna hver við erum, af hverju við erum þarna og hvernig þetta byrjaði. Ekki bíða eftir stemningunni. Búum hana til. Ekki bíða eftir því að næsti maður byrji að syngja. Byrjum sjálf. Ekki spyrja hvort landsliðið ætli að gefa okkur ástæðu til að láta í okkur heyra. Gefum þeim ástæðu til að heyra í okkur frá fyrstu mínútu. Því á endanum snýst þetta kannski um eina mjög einfalda spurningu. Þegar það er landsleikur. Þegar stemninguna vantar. Þegar liðið okkar gengur út á völlinn. Kemur Tólfan? Já Tólfan kemur!🇮🇸💙 Höfundur er formaður stuðningssveitarinnar Tólfunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Sjá meira
Það er landsleikur gegn Eistlandi á morgun. Og við skulum ekkert vera að fegra stöðuna. Miðasalan er dræm. Spennan í kringum leikinn er lítil. Það hefur vantað neista. Og við í Tólfunni höfum heldur ekki verið að standa okkur nægilega vel. Það er auðvelt að mæta þegar allt er í blússandi gír, spennan áþreifanleg og sérstaklega þegar stórmót eru á næsta leyti. Þegar miðarnir seljast upp á korteri. Þegar þjóðin talar um ekkert annað. Þegar allir vilja vera með. Þegar stemningin verður til áður en við göngum inn á völlinn. En þá þarf í raun ekkert að spyrja: Kemur Tólfan? Auðvitað kemur hún þá. Spurningin skiptir máli á dögum og kvöldum eins og þessum. Þegar enginn ætlar að búa stemninguna til fyrir okkur. Þegar við þurfum að gera það sjálf. Tólfan varð ekki til vegna þess að íslenska landsliðið þurfti stuðningsmenn þegar vel gekk. Hún varð til vegna þess að íslenska landsliðið á að eiga stuðningsmenn. Punktur. Hún var stofnuð í skugga ömurlegs taps árið 2007 af frábæru fólki! Fólki sem mætir. Fólki sem syngur. Fólki sem stendur saman. Fólki sem ákveður að gera venjulegan landsleik að einhverju meira. Við höfum öll upplifað kvöldin þar sem Laugardalsvöllur hefur nötrað. Þar sem stemningin er á heimsmælikvarða. Við vitum hvernig þetta getur verið. En svona kvöld verða ekki til af sjálfu sér. Einhver þarf að byrja. Á morgun er tækifæri fyrir okkur í Tólfunni að líta aðeins í eigin barm og muna hver við erum, af hverju við erum þarna og hvernig þetta byrjaði. Ekki bíða eftir stemningunni. Búum hana til. Ekki bíða eftir því að næsti maður byrji að syngja. Byrjum sjálf. Ekki spyrja hvort landsliðið ætli að gefa okkur ástæðu til að láta í okkur heyra. Gefum þeim ástæðu til að heyra í okkur frá fyrstu mínútu. Því á endanum snýst þetta kannski um eina mjög einfalda spurningu. Þegar það er landsleikur. Þegar stemninguna vantar. Þegar liðið okkar gengur út á völlinn. Kemur Tólfan? Já Tólfan kemur!🇮🇸💙 Höfundur er formaður stuðningssveitarinnar Tólfunnar.
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar