Áskorun

50+: Er ég að verða heyrnar­laus eða eru allir farnir að öskra?

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það er orðið slæmt þegar við kinkum kolli og brosum án þess að hafa hugmynd um hvort vinur eða vinkona er að tala um spennandi starf eða hjónaskilnað. Erum við að missa heyrnina - vitið? Eða eru kannski allir bara farnir að öskra?
Það er orðið slæmt þegar við kinkum kolli og brosum án þess að hafa hugmynd um hvort vinur eða vinkona er að tala um spennandi starf eða hjónaskilnað. Erum við að missa heyrnina - vitið? Eða eru kannski allir bara farnir að öskra? Vísir/Getty

Það er loksins komið að því að fara út að borða með góðum vinum. Tilhlökkunin er mikil, búið að panta borð, farða sig og jafnvel strauja skyrtu. Nýr veitingastaður sem þú hefur einmitt heyrt af, séð á Instagram og hlakkar til að prófa.

En um leið og þú stígur inn á staðinn mætir þér veggur af hljóði.

Þetta er ekki bara lágvært suð af fólki að njóta lífsins; þetta er sambland af bassaþungri kaffihúsa-teknótónlist, brothljóðum úr opnu eldhúsi og tugum manna sem eru allir að reyna að yfirgnæfa næsta borð.

Eftir tuttugu mínútur ertu farin/n að halla þér svo langt yfir borðið að nefið snertir næstum matinn eða flöskuna.

Ha? 

Þú leggur höndina við eyrað, kinkar kolli af mikilli innlifun og segir:

 „Já, einmitt, vá hvað það er rétt hjá þér!“ – án þess að hafa hugmynd um hvort vinur þinn var að lýsa nýju starfi eða skilnaði.

Er þetta ellin að mæta á svæðið fyrir aldur fram eða er samvera á veitingastað orðin eins og að reyna að spjalla yfir kveiktum NutriBullet-blandara?

Nei, veistu: Þú ert ekki að missa vitið og líklega ekki heyrnina heldur.

Fyrst eru það góðu fréttirnar:

Þú ert í alvöru líklega ekki að verða heyrnarskert(ur) í hefðbundnum skilningi. Ef þú færir í heyrnarmælingu á morgun gætirðu mjög líklega greint öll fínu píp-hljóðin og það án vandræða.

Vandinn liggur ekki í sjálfum hljóðhimnunum, heldur í móttökustöðinni: heilanum.

Vísindamenn við stofnanir á borð við Johns Hopkins Medicine hafa ítrekað bent á að með aldrinum – og þetta byrjar oft lúmskt um og upp úr fertugu – breytist svokölluð miðlæg hljóðúrvinnsla (e, central auditory processing). Þetta tengist því sem sálfræðingar og taugavísindamenn kalla kokkteilpartí-áhrifin (e.The Cocktail Party Effect).

Sjáðu til: 

Ungur heili tekur inn tuttugu mismunandi hljóðgjafa. 

Síar í burt hnífapör og bassatrommur, dregur rödd vinar þíns í forgrunn.

Þannig að 50+ þýðir ekkert að ellin sé mætt á staðinn þótt þú farir að velja öðruvísi staði en áður þegar þú ferð út að borða eða í einn góðan drykk með vinum. Þetta er bara heilinn þinn sem á í dag erfiðara með að skilja tal frá suði.

Ps. Og smá gleðikorn í lokin líka (eða þannig!):

Hinar fréttirnar eru þær að almennt eru veitingastaðir og kaffihús hannaðir háværari en hér í den. Pældu í því!

50+

Tengdar fréttir

50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli

Brandarar um tengdó virðast vera alþjóðlegt fyrirbæri. Sögurnar eru óteljandi. Oft spaugilegar. Sumar skelfilegar. Aðrar dramatískar eða tilfinningalega erfiðar.

50+: Það má segja Nei við barnapössun

Vissuð þið að það er til eitthvað sem kallast ömmu- og afakulnun? (e. grandparents burnout) Og að á netinu er heilmikið til af efni, skrifað bæði vestanhafs og austan, um það hvers vegna það sé í góðu lagi fyrir ömmur og afa að segja stundum Nei við barnapössun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.