Sport

13 ára sund­kona vann þrenn verð­laun og virðist ó­stöðvandi

Andri Broddason skrifar
Yu Zidi er aðeins 13 ára gömul en er samt að bæta met á Asíuleikunum
Yu Zidi er aðeins 13 ára gömul en er samt að bæta met á Asíuleikunum Atsushi Tomura/Getty Images

Kínverska sundkonan Yu Zidi er aðeins 13 ára gömul en hún hefur slegið í gegn á Asíuleikunum. Hún náði að vinna þrenn gullverðlaun og er hún orðin eitt mesta efni í sundi sem hefur sést.

Yu Zidi vann gullverðlaun í 200 metra flugsundi, 200 metra fjórsundi og 400 metra fjórsundi. Hún stórbætti fyrra met í síðastnefndu greininni á Asíuleikunum um næstum fjórar og hálfa sekúndu.

Í fjórsundi eru allar fjórar sundaðferðir notaðar til keppni: skriðsund, bringusund, baksund og flugsund. Yu var næstum fjórum sekúndum á undan Ke Wenxi sem endaði í öðru sæti og tók silfurverðlaun í 400 metra fjórsundi.

Eftir þennan stórfína árangur á Asíuleikunum er ekki aðeins búist við að hún muni ná að keppa á næstu Ólympíuleikum árið 2028 heldur gæti hún jafnvel unnið til verðlauna. Þegar leikarnir verða haldnir verður Zu orðin 15 ára gömul og því má gera ráð fyrir því að þetta verði ekki hennar síðustu Ólympíuleikar.

Samkvæmt reglum Alþjóðasundsambandsins er hún of ung til þess að keppa en til þess að keppa á alþjóðlegum mótum þurfa keppendur að vera orðnir 14 ára. Sambandið gerir þó undantekningu ef keppendur eru nógu hraðir og þess vegna fær Yu leyfi til þess að keppa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×