Svekkjandi jafntefli hjá Glódísi Perlu og Cecilía hélt hreinu í Íslendingaslag Andri Broddason skrifar 22. september 2026 18:48 Glódís Perla Viggósdóttir var í byrjunarliði Bayern München í kvöld. Pau Barrena/Getty Images Bayern München tók á móti Manchester City í Meistaradeild Evrópu kvenna og var Glódís Perla Viggósdóttir í byrjunarliði Bayern. Liðið gerði svekkjandi 2-2 jafntefli við Manchester City en á sama tíma var Íslendingaslagur þegar Inter vann BK Häcken 1-0.
Bayern München byrjaði leikinn betur og náði Giulia Gwinn að koma liðinu í forystu strax á elleftu mínútu. Hún slapp inn fyrir vörn Manchester City og kláraði færið með föstu skoti sem var óverjandi fyrir Ayaka Yamashita í markinu. Þrátt fyrir að vera með forystuna var leikurinn ennþá jafn og var Manchester City nálægt því að jafna metin stuttu eftir að hafa lent undir. Lauren Hemo gaf fyrirgjöf sem Glódís Perla náði að koma í veg fyrir. Boltinn fór hins vegar í átt að marki og endaði í slánni. Nánast í næstu sókn kemst Bayern í tveggja marka forystu eftir að Kerstin Casparij, varnarmaður Manchester City, mistókst að hreinsa fyrirgjöf Bayern og skoraði sjálfsmark. Bayern hélt áfram að pressa á gestina en þeir fengu líflínu þegar þeir minnkuðu muninn rétt áður en flautað var til hálfleiks með marki frá Beth Mead. Leikmenn Bayern München kvörtuðu yfir markinu þar sem blys var á vellinum nálægt uppspili Manchester City sem truflaði varnarleik heimaliðsins. Myndbandsdómgæsla fór yfir atvikið en markið stóð samt. Í byrjun seinni hálfleiks var Glódís Perla grátlega nálægt því að skalla boltann inn en hann endaði á því að fara rétt fram hjá. Á 60. mínútu fékk Manchester City vítaspyrnu eftir að Ena Mahmutovic, markmaður Bayern, braut glannalega af sér. Khadija Shaw fór á punktinn en Mahmutovic varði spyrnuna og bjargaði sínum eigin mistökum. Shaw var tekin af velli um leið og hún klúðraði vítaspyrnunni. Manchester City reyndi að sækja jöfnunarmarkið og náði það loksins að koma á 86. mínútu leiksins með marki frá Carlottu Wamser. Leikurinn endaði því með svekkjandi jafntefli fyrir Bayern München en Manchester City sýndi mikinn karakter að koma til baka. Inter hafði betur í Íslendingaslagnum Á sama tíma var Íslendingaslagur í Meistaradeild Evrópu þar sem Inter mætti BK Häcken. Cecilía Rán Rúnarsdóttir var í marki Inter og Thelma Karen Pálmadóttir var í byrjunarliði BK Häcken. Inter Milan náði forystunni strax á fimmtu mínútu með marki frá Haley Bugeja og átti Hacken í erfiðleikum með að jafna metin. Á 56. mínútu leiksins kom Karólína Lea Vilhjálmsdóttir inn á völlinn til að auka sóknarþunga Inter. Inter var nálægt því að tvöfalda forystu leiksins í lokin en Jennifer Falk í marki Hacken gerðist brotleg og fékk að launum rautt spjald. Leikurinn endaði með 1-0 sigri Inter og náði Cecilía Rán að halda hreinu í marki Inter.
Íslendingar erlendis Fótbolti Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Íslenski boltinn Öll spjót beinast að Írum og Heimi Fótbolti „Stundum ertu með hálfvita sem þjálfara“ Sport Kallaður heimskur og hræsnari fyrir að gagnrýna þjóðarmorð í Ísrael Fótbolti Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Handbolti Síðustu landsleikir Arons Einars framundan Fótbolti Bjarki Steinn fótbrotinn og verður ekki með Fótbolti Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Íslenski boltinn Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Íslenski boltinn Mótmæli fyrir utan liðshótel lærisveina Heimis Fótbolti Fleiri fréttir Svekkjandi jafntefli hjá Glódísi Perlu og Cecilía hélt hreinu í Íslendingaslag Vaknaði við skilaboð frá nýja þjálfaranum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Myndasyrpa: Áritanir og æfing í Laugardalnum Bjarki Steinn fótbrotinn og verður ekki með Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Síðustu landsleikir Arons Einars framundan Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Öll spjót beinast að Írum og Heimi Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Mótmæli fyrir utan liðshótel lærisveina Heimis Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Steinn orðinn vinsæll eftir að Salah settist á hann Prentaði mynd af brotum sem áttu að verðskulda rauð spjöld Maldini ranglega ásakaður um eiturlyfjanotkun Kallaður heimskur og hræsnari fyrir að gagnrýna þjóðarmorð í Ísrael Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Blómstrar undir stjórn Freys: „Veit ekki hversu lengi við náum að halda honum“ Eiði Smára ekki skemmt Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Sjá meira