Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar 22. september 2026 08:00 Nýlega hlustaði ég á stjórnmálaspekinga fara yfir stöðu mála í íslenskum stjórnmálum á RÚV. Þar var því meðal annars haldið fram að Inga Sæland væri drottning ríkisstjórnarinnar. Farið var yfir hversu ráðandi stefnumál Flokks fólksins hefðu verið í verkum ríkisstjórnarinnar og hversu stoltur flokkurinn gæti verið af árangri sínum. Ég get svo sannarlega tekið undir þetta. Hvert sem litið er hefur ríkisstjórnin náð miklum árangri. Það á sérstaklega við þegar litið er til ráðuneyta og ábyrgðarsviða Flokks fólksins. Stórkostlegu átaki hefur verið hleypt af stokkunum í heilbrigðis- og velferðarmálum með mikilli uppbyggingu hjúkrunarrýma. Ný rými eru mörg hundruð prósent fleiri frá því Inga Sæland tók við verkefninu miðað við árin þar á undan. Þetta skiptir miklu máli fyrir alla heilbrigðisþjónustu landsins. Samkvæmt yfirlýsingu frá Landspítalanum hefur staðan í útskriftarmálum sjúkrahússins ekki verið betri það sem af er þessari öld og dregið hefur verulega úr útskriftarvanda. Stórbætt kjör almannatryggingaþega Á sama tíma hefur ríkisstjórnin stigið gríðarlega stór skref til að bæta kjör þeirra sem höllum fæti standa á þeim málasviðum sem heyra undir Flokk fólksins. Grunnframfærsla aldraðra og öryrkja hefur verið hækkuð, stórlega dregið úr skerðingum og vaxandi kjaragliðnun á undanförnum árum hefur verið stöðvuð. Eins og áður stendur Flokkur fólksins vörð um jólabónusinn til öryrkja sem frá síðasta ári nær einnig til mörg þúsund aldraðra. Þá hefur hlutfall fyrstu kaupenda á íbúðarhúsnæði ekki verið hærra frá hruni, auk þess sem réttindi leigjenda hafa verið stórbætt. Miklar samgöngubætur Samgönguinnviðir samfélagsins hafa sömuleiðis fengið nauðsynlega innspýtingu. Milljörðum hefur verið bætt í árlegt viðhald vega. Samanlagt aukast framlög í nýrri samgönguáætlun um 90 milljarða miðað við áætlun fyrri ríkisstjórnar. Vetrarþjónusta á fjallvegum er nú fullfjármögnuð eftir að hafa verið í bullandi halla undanfarin ár og undirbúningur Fljótaganga hefst núna í haust. Þá er verið að taka á þeirri óreiðu sem fyrrverandi ríkisstjórn skildi eftir sig í leigubílamálum með nýjum lögum sem tóku gildi í sumar og nýrri reglugerð sem tekur gildi fljótlega. Þá var Strandveiðitímabilið í sumar var það aflahæsta frá upphafi. Að auki hefur ríkisstjórnin tekið til í þeirri óreiðu sem ríkt hefur í málefnum hælisleitenda mörg undanfarin ár. Nú er staðan orðin þannig að verulega hefur dregið úr þeim fjölda sem fær hæli á Íslandi og málaflokkurinn almennt kominn undir betri stjórn. Allur þessi árangur hefur náðst þrátt fyrir kröfur um almennt aðhald og niðurskurð til að ná fram hallalausum fjárlögum. Allt útlit er fyrir að það takist þrátt fyrir harða mótstöðu stjórnarandstöðuflokkanna gegn nánast öllu þeim breytingum sem taldar hafa verið upp hér að framan. Verk ríkisstjórnarinnar og Flokks fólksins innan hennar sýna svart á hvítu að það er hægt að byggja betra og sanngjarnara samfélag með réttlátri forgangsröðun. Með því að setja fólkið í fyrsta sæti. Fólkið fyrst og svo allt hitt. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Flokkur fólksins Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar