Körfubolti

Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer var­lega

Sindri Sverrisson skrifar
Ólafur Ólafsson smellir kossi á Íslandsmeistarabikarinn, ristarbrotinn á Sauðárkróki í vor.
Ólafur Ólafsson smellir kossi á Íslandsmeistarabikarinn, ristarbrotinn á Sauðárkróki í vor. mynd/Sigurður Ingi Pálsson

Íslandsmeistarar Grindavíkur í körfubolta þurfa líklega að spjara sig án fálkaorðuhafans Ólafs Ólafssonar þegar titilvörn þeirra hefst í október. Hann ristarbrotnaði í úrslitaeinvíginu gegn Tindastóli í maí.

Óvissa ríkir um það hvenær Ólafur mætir til leiks en Grindavík mætir bikarmeisturum KR í Meistarakeppni KKÍ 3. október, og liðin mætast svo í Grindavík sex dögum síðar í fyrstu umferð Bónus-deildarinnar.

Sögusagnir hafa verið uppi um að Ólafur spili lítið eða ekkert fram að jólum.

„Það gæti alveg verið. Svo gæti ég verið frá út tímabilið. Tíminn verður bara að leiða þetta í ljós,“ segir Ólafur.

Hann fór í skoðun hjá lækni í gær og fer aftur í myndatöku í næsta mánuði, og útilokar ekki að vera með í upphafi tímabilsins.

„Það er ekkert líklegt en það gæti alveg gerst,“ segir Ólafur sem í sumar framlengdi samning sinn við Grindavík til næstu tveggja ára.

„Ekki hefðbundið brot“

Hann ristarbrotnaði eins og fyrr segir í leik þrjú í úrslitaeinvíginu gegn Tindastóli í maí.

„Þetta tekur bara tíma því þetta var álagsbrot. Þetta var ekki hefðbundið brot, því beinið fór í tvennt, og það tekur lengri tíma.

Ég ætla ekkert að flýta mér og fara of snemma of stað. Þetta er leiðinlegt brot og ég ætla að leyfa því að gróa alveg. En ég er að lyfta og skjóta, og allt það sem þarf, en þetta fær að gróa alveg 150 prósent,“ segir Ólafur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×