Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Aron Guðmundsson skrifar 13. september 2026 10:30 Það var nóg um að vera í ensku úrvalsdeildinni í gær. Öll mörkin má sjá í þessari frétt Vísir/Getty Leikir dagsins í enska boltanum buðu upp á mikla skemmtun og fjölmörg mörk. Chelsea missteig sig á heimavelli og sömuleiðis Liverpool á meðan Englandsmeistarar Arsenal stóðust krefjandi áskorun gegn Sunderland. Átján mörk voru skoruð í leikjunum sjö í gær og var nóg um dramatík.
Á Stamford Bridge reyndust nýliðar Hull heimamönnum í Chelsea þrándur í götu og neituðu að gefast upp. Svo fór að leikar þar enduðu 2-2. Hull hefur farið frábærlega af stað í ensku úrvalsdeildinni og vermir nú þriðja sæti deildarinnar með einu stigi meira en Chelsea í fjórða sæti. Klippa: Chelsea - Hull City | 2-2 Kvöldleikurinn var á milli Sunderland og Arsenal þar sem Englandsmeistararnir stóðust stóra áskorun og fóru af hólmi með 2-0 sigur. Vítaspyrna var dæmd og varin í leiknum og mönnum var heitt í hamsi. Arsenal er búið að vinna alla leiki sína í deildinni til þessa. Klippa: Sunderland - Arsenal | 0-2 Mark undir lok leiks frá Igor Thiago tryggði Nottingham Forest mikilvægan útisigur gegn Aston Villa og heldur dræmt gengi heimamanna undir stjórn Unai Emery á tímabilinu í deildinni áfram. Klippa: Aston Villa - Nottingham Forest | 1-2 Einnig var boðið upp á dramatík á Selhurst Park þar sem mark á lokamínútum leiksins frá Zian Flemming tryggði nýliðum Ipswich Town sigur í fimm marka leik gegn Crystal Palace. Klippa: Crystal Palace - Ipswich Town | 2-3 Fjögur mörk voru svo skoruð á Vitality-leikvanginum þar sem AFC Bournemouth og Brentford gerðu 2-2 jafntefli í skemmtilegum leik. Kevin Schade fór á kostum og skoraði bæði mörk Brentford í leiknum. Klippa: Bournemouth - Brentford | 2-2 Tottenham virðist bara ekki geta skorað mörk. Liðið gerði markalaust jafntefli gegn Everton á heimavelli í gær og hefur, í sínum fjórum leikjum til þessa í deildinni, enn ekki tekist að koma boltanum í netið og er á fallsvæði ensku úrvalsdeildarinnar. Klippa: Tottenham - Everton Þá reyndist gamall leikmaður Liverpool, Alvaro Arbeloa knattspyrnustjóri Fulham, þeim erfiður í gær. Liverpool tókst ekki að finna sigurmarkið í leik liðanna og endaði hann með markalausu jafntefli. Liverpool hefur gert þrjú jafntefli í fyrstu fjórum leikjum sínum til þessa í deildinni og situr í 6. sæti. Klippa: Liverpool - Fulham
Enski boltinn Chelsea FC Hull City AFC Sunderland AFC Arsenal FC Nottingham Forest Aston Villa FC Crystal Palace FC Ipswich Town FC Brentford FC AFC Bournemouth Tottenham Hotspur Everton FC Liverpool FC Fulham FC Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Fleiri fréttir Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Sjá meira