Valshjartað slær en hjá hetju KR Aron Guðmundsson skrifar 12. september 2026 16:44 Valgerður með sínu fólki í stúkunni í dag eftir að hún hafði gulltryggt Bestu deildar sætið fyrir KR-inga. Vísir/Kolbeinn Tumi Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir var hetja KR í dag þegar að liðið tryggði sér sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili með 1-0 sigri gegn Keflavík. Valgerður, sem skoraði eina mark leiksins, er Valsari í grunninn en segir KR-hjartað sterkara. „
Bara beint að djamma,“ sagði Valgerður í samtali við Vísi aðspurð hvaða hugsanir velkist um eftir svona sigur þar sem að Bestu deildar sæti var tryggt. „Maður er svolítið í fagnaðarvímu, þetta er svo kærkomið. Við erum búnar að leggja svo hart að okkur og gott að fá viðurkenninguna á því að við gátum þetta. Eftir að hafa dottið niður í aðra deild, komið okkur síðan upp eftir mikið mótlæti. En við risum upp saman og þetta er ógeðslega gaman, ógeðslega skemmtilegt.“ Lið KR sem er búið að tryggja sér sæti í Bestu deildinniMynd: Mummi Lú Fyrir leik dagsins var KR með örlögin í sínum höndum í 2. sæti deildarinnar og vissi að jafntefli myndi líklegast nægja til að tryggja Bestu deildar sætið en að sigur myndi gulltryggja það. Voruð þið stressaðar? Þið þurftuð að bíða lengi eftir markinu. „Það var aldrei neitt panikk á okkur samt að við myndum ekki ná markinu. Þetta var auðvitað pínu stress en það var samt, þetta var alltaf að fara að koma. Við vissum það.“ Valsari með KR-hjarta Það var vel mætt á Meistaravelli í dag. KR-ingar staðráðnir í að hjálpa sínu liði upp í efstu deild. Það var frábær stemning á Meistaravöllum í dag í rjómablíðu.Mynd: Mummi Lú „Þetta er bara geggjað. Ekkert betra en að fagna með okkar fólki sko,“ segir Valgerður sem er í grunninn Valsari. „Stórsvik. Nei, nei. Bara geggjað. Hjartað einhvern veginn stækkar alltaf bara. En svarthvítt samt. Valsarinn er alltaf í manni en samt sterkara KR-hjarta.“ Liðið geggjað og stemningin ekki síðri Valgerður skoraði eina mark leiksins á 76. mínútu. Hvernig er að dúkka upp, fá boltann í dauðafæri og setja markið sem klárar þetta? „Það er alltaf gaman. Bara partur af leiknum einhvern veginn. Bara geggjað.“ Kara Guðmundsdóttir var markahæsti leikmaður KR á tímabilinu með tólf mörk í Lengjudeildinni. Hún er einn af lykilpóstunum í liðinu ásamt systur sinni, Kötlu Guðmundsdóttur. Dætur Guðmundar Benediktssonar og Kristbjargar Ingadóttur.Mynd: Mummi Lú Valgerður er að upplagi kantmaður og reyndi fyrir sér í Bandaríkjunum á sínum tíma og er nú á leið í Bestu deildina með KR. Og hvað gerist núna? Þið eruð komnar upp í Bestu deildina. „Við bara höldum áfram, stöndum saman. Ég held að það verði bara alltaf staðan. Við rísum upp saman. Það er bara geggjuð stemning yfir þessu, þetta er geggjað lið og bara eintóm gleði. Stemningin mikil eftir miklar raunir KR undanfarin ár.Mynd: Mummi Lú Og verður gaman í kvöld? „Það verður mjög gaman.“
KR Besta deild kvenna Lengjudeild kvenna Íslenski boltinn Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Enski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Fótbolti Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Fótbolti Fleiri fréttir Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Sjá meira