Golf

Aron Snær fékk alba­tros á úrtökumóti DP World Tour

Aron Guðmundsson skrifar
Aron Snær sýndi frábæra takta á úrtökumótinu fyrir DP World Tour í gær.
Aron Snær sýndi frábæra takta á úrtökumótinu fyrir DP World Tour í gær. seth@golf.is

Aron Snær Júlíus­son, kylfingur úr GKG náði þeim magnaða árangri að klára holu á alba­tros á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina, DP World Tour, í golfi.

Albatrosinn fékk Aron Snær á 13. holu á Golf-und Country Club Seddiner See vellinum í Þýskalandi á öðrum hring mótsins. 

Þegar kylfingur fer holu á albatross klárar hann hana á þremur höggum undir pari. Aron Snær fór því þessa par fimm holu á aðeins tveimur höggum.

Aron Snær eftir að hafa náð albatross í Þýskalandi í gærAron Snær á Instagram

Alls fór hann þennan annan hring mótsins á einu höggi undir pari, 71 höggi og er sem stendur jafn í ellefta sæti mótsins ásamt öðrum íslenskum kylfingum, þeim Dagbjarti Sigurbrandssyni og Ragnari Garðarssyni. 

Um úrtökumóti á fyrsta stigi fyrir Evrópumótaröðina er að ræða. Mótið er eitt af tíu mótum á fyrsta stigi úrtökumótanna en kylfingar þurfa að komast í gegnum þrjú stig til þess að fá þátttökurétt á DP World Tour og óhætt að segja að þræða þurfi nálaraugað til að komast alla leið.

Átta íslenskir kylfingar taka þátt á mótinu og hafa þeir verið að setja niður stór högg. Sigurður Arnar Garðarsson átti til að mynda draumahögg á fyrsta hring úrtökumótsins þegar hann fór holu í höggi á 17. holu vallarins.

Þriðji hringur mótsins fer fram í dag. Alls spila 82 kylfingar á mótinu í Þýskalandi og má ætla að rúmlega fimmtungur þeirra fari áfram á annað stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×