Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Birgir Olgeirsson skrifar 7. september 2026 14:54 Frá vinstri eru Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir við kynningu fjárlagafrumvarpsins. Persónuafsláttur og skattþrep eiga að hækka minna en núgildandi regla segir til um og skila ríkinu 3,1 milljarði króna í auknar tekjur. Styttri vinnuvika er meðal þess sem stjórnvöld vísa til þegar breytingin er rökstudd. Anton Brink Ríkissjóður fær 3,1 milljarði króna meira í tekjuskatt árið 2027 en ef núverandi regla héldi sér.
Í fjárlagafrumvarpinu er þetta orðað þannig að „framleiðniviðmiðið“ verði núll prósent árið 2027. Á bak við þetta tæknilega orðalag er eftirfarandi breyting. Persónuafslátturinn og mörk skattþrepanna hækka minna en núgildandi lög gera ráð fyrir. Því verður meira tekið af launum fólks í skatt. Meira af laununum fer í hærra þrep Í dag greiðast 31,49 prósent í skatt af fyrstu 498.122 krónum mánaðarlauna. Af launum umfram þá upphæð greiðast 37,99 prósent og af tekjum yfir 1.398.450 krónum greiðast 46,29 prósent. Aðeins sá hluti launanna sem fer yfir mörkin ber hærri skatt. Ef mörkin hækka minna færist stærri hluti launanna upp í hærra þrep. Persónuafslátturinn lækkar síðan skattreikninginn. Hann er nú 72.492 krónur á mánuði. Þar sem hann hækkar minna árið 2027 verður afslátturinn lægri en hann hefði annars orðið. Skattprósenturnar breytast því ekki. Fólk greiðir samt meiri skatt. Segja fyrri hækkanir hafa verið of miklar Mörk skattþrepanna og persónuafslátturinn hækka venjulega í takt við verðbólgu. Við þá hækkun hefur einnig verið bætt einu prósenti vegna áætlaðrar framleiðniaukningar. Ríkisstjórnin ætlar að sleppa þessu eina prósenti árið 2027. Fjárhæðirnar hækka því aðeins um áætlaða verðbólgu, eða 5,2 prósent. Ráðuneytið segir framleiðniaukninguna hafa verið minni en áður var talið, meðal annars vegna styttri vinnuviku. Persónuafslátturinn og skattþrepin hafi því hækkað of mikið undanfarin ár og skattbyrði lækkað án þess að það hafi verið ætlunin. Stjórnvöld líta því á breytinguna sem leiðréttingu. Fyrir skattgreiðendur þýðir hún að 3,1 milljarði króna meira verður tekið af þeim í skatt árið 2027.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjárlagafrumvarp 2027 Alþingi Stytting vinnuvikunnar Rekstur hins opinbera Vinnumarkaður Tengdar fréttir Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Framkvæmdastjóri Samtaka í ferðaþjónustu segir fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár fela í sér reiðarslag fyrir ferðaþjónustu á Íslandi en stór hluti tekjuaukningar ríkisins kemur frá ferðaþjónustunni. Aukin skattheimta séu gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí,“ sem nemi helmingi heildarafkomu greinarinnar árið 2024. 7. september 2026 14:03 „Hvar ætla þau þá að spara?“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja jákvætt að ríkisstjórnin stefni að hallalausum ríkisrekstri en segja að það hangi á bláþræði hvort það muni takast og óttast að áætlanir muni ekki halda. Þá segist þingmaður Miðflokksins óljóst hvar skera eigi niður á meðan þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir bankaskatt eiga eftir að bitna mest á skuldurum. 7. september 2026 12:58 Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Áformað er að hækka bankaskatt úr 0,145 prósentum í 0,254 prósent eða því sem nemur rúmlega 75 prósenta hækkun í nýju fjárlagafrumvarpi. Með þessu er áformað að styrkja tekjugrunn ríkissjóðs. 7. september 2026 10:27 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fleiri fréttir Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Sjá meira
Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Framkvæmdastjóri Samtaka í ferðaþjónustu segir fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár fela í sér reiðarslag fyrir ferðaþjónustu á Íslandi en stór hluti tekjuaukningar ríkisins kemur frá ferðaþjónustunni. Aukin skattheimta séu gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí,“ sem nemi helmingi heildarafkomu greinarinnar árið 2024. 7. september 2026 14:03
„Hvar ætla þau þá að spara?“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja jákvætt að ríkisstjórnin stefni að hallalausum ríkisrekstri en segja að það hangi á bláþræði hvort það muni takast og óttast að áætlanir muni ekki halda. Þá segist þingmaður Miðflokksins óljóst hvar skera eigi niður á meðan þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir bankaskatt eiga eftir að bitna mest á skuldurum. 7. september 2026 12:58
Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Áformað er að hækka bankaskatt úr 0,145 prósentum í 0,254 prósent eða því sem nemur rúmlega 75 prósenta hækkun í nýju fjárlagafrumvarpi. Með þessu er áformað að styrkja tekjugrunn ríkissjóðs. 7. september 2026 10:27